Sauðfjárréttir á Suðurlandi hefjast í dag í Hrunamanna- og Gnúpverjahreppum. Hér að neðan má sjá lista yfir tímasetningar á auglýstum réttum sem framundan eru á landshlutanum.
| Hrunaréttir í Hrunamannahreppi, Árn. | föstudaginn 8. september |
| Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi, Árn. | föstudaginn 8. september |
| Reykjaréttir á Skeiðum, Árn. | laugardaginn 9. september |
| Tungnaréttir í Biskupstungum | laugardaginn 9. september kl. 9.00 |
| Haldréttir í Holtamannaafrétti, Rang. | sunnudaginn 10. september |
| Þóristunguréttir, Holtamannaafr., Rang | sunnudaginn 10. september |
| Fjallrétt við Þórólfsfell, Rang. | mánudaginn 11. september kl. 10.00 |
| Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum | laugardaginn 16. september kl. 11.00 |
| Fossvallarétt í Lækjarbotnalandi | laugardaginn 16. september kl. 14.00 |
| Húsmúlarétt við Kolviðarhól, Árn. | laugardaginn 16. september kl. 14.00 |
| Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árn. | laugardaginn 16. september kl. 15.00 |
| Fljótshlíðarrétt í Fljótshlíð, Rang. | sunnudaginn 17. september kl. 11.00 |
| Þórkötlustaðarétt í Grindavík | sunnudaginn 17. september kl. 14.00 |
| Ölfusrétt í Reykjadal, Ölfusi | sunnudaginn 17. september kl. 15.00 |
| Brúsastaðarétt í Þingvallasveit, Árn. | sunnudaginn 17. september kl. 17.00 |
| Grafningsrétt í Grafningi | mánudaginn 18. september kl. 9.45 |
| Landréttir við Áfangagil, Rang. | fimmtudaginn 21. september |
| Seljalandsréttir undir Eyjafjöllum, Rang. | laugardaginn 23. september |
| Selvogsrétt í Selvogi, Árn. | sunnudaginn 24. september kl. 9.00 |
| Austur-Landeyjaréttir hjá Grenstanga, Rang. | sunnudaginn 24. september kl. 14.00 |
| Vestur-Landeyjaréttir við Forsæti, Rang. | sunnudaginn 24. september kl. 14.00 |
Heimild: Bændablaðið.

