3.9 C
Selfoss
Home Fréttir Fimmti hluti pílagrímagöngunnar

Fimmti hluti pílagrímagöngunnar

0
Fimmti hluti pílagrímagöngunnar

Á morgun sunnudaginn 23. júlí verður fimmti hluti pílagrímagöngunnar og verður gengið frá Ólafsvallakirkju á Skeiðum heim i Skálholt. Farið verður vestan megin við Vörðufell og leiðin er 16 km. Allir eru velkomnir til að skrá sig og taka þátt í þessari göngu. Ferðafélag Íslands hefur umsjón með skráingun (sjá vef þeirra www.fi.is). Leiðsögn og hugleiðingar eru í höndum Axels Á. Njarðvík og Halldórs Reynissonar.

Gangan hefst kl. sjö að morgni er farið verður frá Skálholti í rútu og keyrt að Ólafsvöllum til stuttarar stundar í kirkjunni þar. Síðan ganga pílagrímarnir af stað. Göngunni lýkur með inngöngu í messu í Skálholtsdómkirkju á Skálholtshátíð kl. 13:30. Dagskrá Skálholtshátíðar er öllum opin og aðgengilega á www.skalholt.is.