8.9 C
Selfoss

Jóna Katrín er nýr skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni

Vinsælast

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Jónu Katrínu Hilmarsdóttur í embætti skólameistara Menntaskólans að Laugarvatni til fimm ára frá 15. febrúar 2023.

Jóna Katrín lauk B.A.-prófi í ensku í júní 2007 og M.Paed-prófi í sama fagi árið 2010 við Háskóla Íslands. Þá lauk hún kennslufræðinámi til kennsluréttinda á meistarastigi við Háskóla Íslands árið 2010. Jóna Katrín er með viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu frá árinu 2020 og hefur lokið hluta af námi á meistarastigi í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands með áherslu á stjórnun menntastofnana.

Jóna Katrín hefur starfað við menntamál frá árinu 2007, bæði í grunn- og framhaldsskóla. Hún kenndi ensku á námskeiðum fyrir fullorðna og fyrir fólk í atvinnuleit við Fræðslunet Suðurlands árin 2008–2010. Þá hefur Jóna Katrín starfað við Menntaskólann að Laugarvatni frá árinu 2010 sem enskukennari, fagstjóri og áfangastjóri. Auk þess starfaði hún sem aðstoðarskólameistari skólans frá apríl 2021 til mars 2022 og hefur tvívegis starfað sem settur skólameistari, annars vegar frá september 2020 til og með mars 2021 og hins vegar frá mars 2022 til og með janúar 2023.

Alls sóttu tveir umsækjendur um embættið.

Nýjar fréttir