Fjórðungsglíma Suðurlands 2025 var haldin í íþróttahúsinu á Hvolsvelli fimmtudaginn 4. desember 2025. Alls mættu 27 keppendur til leiks frá tveimur félögum. Keppt var í níu flokkum barna og unglinga og karlaflokki. Keppni í nokkrum flokkum féll niður vegna þátttökuleysis.
Ingvar Máni Bjarnason úr Dímon varð fjórðungsmeistari karla í fyrsta sinn, eftir hörkukeppni við félaga sína úr Dímon, þá Heimi Árna Erlendsson, sem varð annar og Runólf Mar Þorkelsson varð þriðji.
Þá unnu Dímonarkeppendur alla flokka barna og unglinga á mótinu. Fjórðungsmeistarar urðu þau Katla Kolbrún Hoffritz, Franek Nogel, Elvíra Sigurðardóttir, Héðinn Bjarni Antonsson, Viktoría Alba, Matthías Magnússon, Sæþór Jóhannsson, Jens Eyvindur Ágústsson og Micha Dmitrogsezyn.
Heildarúrslit eru á www.hsk.is.

