6.2 C
Selfoss

Gjöf veitt Heimaspítala HSU.

Vinsælast

Það var hátíðleg athöfn á Vinkonukvöldi Lionsklúbbsins Emblu þegar Hjördís Inga Sigurðardóttir, varaformaður Styrktarsjóðs Emblu, afhenti Heimspítala HSU Vacsan Air CL ómskoðunartæki auk spjaldtölvu sem tengist við síma, að upphæð 811 þúsund krónur. Anna Margrét Magnúsdóttir, aðstoðarhjúkrunarstjóri, og Margrét Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar, veittu gjöfinni viðtöku, fóru nokkrum orðum um tilgang tækisins og starf Heimaspítala HSU sem þjónustar skjólstæðinga í heimahúsi ber að fagna því að fólk geti dvalið lengur heima og fengið þjónustuna til sín.

Við Emblur þökkum gestum okkar fyrir komuna á Vinkonukvöldið svo og fyrirtækjum fyrir þeirra framlag, en þetta er aðal fjáröflunarverkefni klúbbsins og ágóðinn af kvöldinu rennur allur í Styrktarsjóð sem gerir okkur kleift að styrkja svona verkefni í nær samfélaginu.

Styrktarsjóður Emblu

Anna Margrét Magnúsdóttir og Margrét Björk Ólafsdóttir. Mynd: Aðsend.

Nýjar fréttir