6.2 C
Selfoss

Okkar Hveragerði býður fram í sveitarstjórnarkosningum 2026

Vinsælast

Bæjarmálafélagið Okkar Hveragerði býður fram lista í sveitarstjórnarkosningum þann 16. maí 2026. Þetta verður í þriðja sinn sem félagið býður fram í Hveragerði. Í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022 hlaut Okkar Hveragerði tæplega 40% atkvæða og þrjá kjörna bæjarfulltrúa. Okkar Hveragerði varð því stærsta stjórnmálaaflið í sveitarfélaginu eftir kosningarnar og fékk þannig skýran stuðning íbúa við þau málefni og gildi sem listinn stendur fyrir.

Á kjörtímabilinu 2022-2026 hefur Okkar Hveragerði verið í meirihluta í bæjarstjórn Hveragerðis og lagt áherslu á opna stjórnsýslu, lýðræðislega þátttöku íbúa og traust samstarf við samfélagið. Þær áherslur munu áfram vera í forgrunni næsta kjörtímabil. Bæjarfulltrúar Okkar Hveragerðis hafa á kjörtímabilinu fundið fyrir sterkum meðbyr og skýrum vilja íbúa til að halda áfram að styrkja Hveragerði sem fjölskylduvænt samfélag sem einkennist af samvinnu, virðingu og framsýni ásamt ábyrgri fjármálastjórn.

Nýjar fréttir