6.2 C
Selfoss

Menningarviðurkenning Árborgar 2025

Vinsælast

Sveitarfélagið Árborg endurvekur Menningarviðurkenningu Árborgar og veitir hana sunnudaginn 26. október kl. 14 í varðveisluhúsi Byggðasafns Árnesinga að Búðarstíg 22 á Eyrarbakka. Viðurkenningin er veitt vegna framúrskarandi starfa í þágu menningarlífs í Árborg.

Viðburðurinn er hluti af dagskrá Menningarmánaðarins október. Í kjölfar viðurkenningarinnar verður viðburður á vegum Byggðasafnsins „Sögu horfinna húsa á Eyrarbakka púslað saman“ en safnið tekur virkan þátt í menningarmánuði í ár sem áður og hefur boðið upp á viðburði í safnhúsum sínum alla sunnudaga í október.

Bæjarstjóri Árborgar, Bragi Bjarnason, mun veita viðurkenninguna fyrir hönd Bæjarráðs og eru allir íbúar velkomnir til þess að fagna með viðurkenningarhöfum.

Nýjar fréttir