Yfir fjörutíu stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Suðurlands komu saman í síðustu viku á árlegri vinnustofu sem ber yfirheitið Stjórnendadagar. Þetta er fimmta árið í röð sem stjórnendur deilda HSU koma saman á vinnustofu. Lykilþema stjórnendadaga í ár var stefnumótun, fjármál og mannauður og erindin lituð af þeim.
Forstjóri HSU, Díana Óskarsdóttir, kynnti framtíðarstefnu HSU til ársins 2030 og út frá henni hófst stefnumótunarvinna meðal stjórnenda í litlum hópum. Afbragðsgóðar umræður sköpuðust og fullt af tækifærum litu dagsins ljós sem unnið verður áfram með. Jafnframt verður horft til hugmynda starfsfólks og hagaðila stofnunarinnar sem skipta sköpum í áframhaldandi mótun stefnunnar.
Margrét Björk Svavarsdóttir, fjármálastjóri, fór yfir rekstrarmál og kynnti þau verkfæri sem eru til. Thelma yfirsálfræðingur kynnti fyrir hópnum nýtt fyrirkomulag í sálfræðiþjónustu og sagði frá spennandi fjögurra ára samstarfsverkefni milli HSN, HVE og HSU.
Stjórnendur fengu líka fyrirlestur frá Mental um geðheilbrigði á vinnustað, ásamt öðrum erindum og að lokum var farið í heimsókn á Móberg.
Á þessum dögum myndast gullin tækifæri til umbóta þvert á stofnunina og sú samvinna sem myndast ýtir enn frekar undir tengsl milli deilda, stjórnenda og starfsstöðva.

