Lyfsala verður opnuð á Flúðum við hlið nýrrar heilsugæslu síðar á árinu. Samningur hefur verið undirritaður milli eigenda Apóteks Suðurlands og Hrunamannahrepps um leigu á húsnæðinu að Hrunamannvegi 3 sem er í eigu sveitarfélagsins. Mun opunartími lyfjaafgreiðslunnar verða sá sami og heilsugæslunnar sem tryggir notendum bestu mögulegu þjónustu.
Við undirritunina kom fram mikil ánægja með fyrirhugað samstarf en opnun lyfjaafgreiðslu í uppsveitum Árnessýslu er afar ánægjuleg staðreynd og styrkir enn frekar búsetuskilyrði á svæðinu. Við undirritunina lýstu sveitarstjóri ennfremur yfir sérstakri ánægju með að Apótek Suðurlands sem er sjálfstætt starfandi apótek með rekstur á Selfossi væri tilbúið í verkið en það er í eigu öflugra kvenna af Suðurlandi.

