2.9 C
Selfoss

Þarfagreining

Hírast í haustsins hreti,
drengur og stúlka standa við leið.
Augnaráð lituð af vonleysi og neyð,
kvíða þau kuldans vetri?

Bíða eftir fari í lærdómsbýlið,
með Árborgar-bílnum langa.
Vindurinn keyrir vætu á vanga
”Ó mæ gad! Hvar er he%#*s strætóskýlið?”

Það er þörf fyrir strætóskýli á Eyrarbakka og Stokkseyri.

Tinna Björg Kristinsdóttir

Nýjar fréttir