Eftir tvö vel heppnuð ár á Akureyri flytur Northern Lights – Fantastic Film Festival á Suðurland. Þriðja útgáfa hátíðarinnar verður haldin á Stokkseyri dagana 30. október til 2. nóvember 2025, í húsinu sem áður hýsti Draugasetrið og Álfa-, trölla- og norðurljósasafnið. Þar ætlar hátíðin að halda áfram að byggja brú milli fortíðar og framtíðar, þjóðsagna og kvikmynda, enda eitt af aðalmarkmiðum hátíðarinnar að hvetja kvikmyndahöfunda til að nýta sér íslenskan þjóðsagnararf í verkum sínum.
Ákvörðunin um að flytja hátíðina frá Akureyri til Stokkseyrar er m.a. liður í því að gera hana aðgengilegri kvikmyndanemum sem og alþjóðlegum gestum hátíðarinnar.
Óskarsverðlaun í hús
Það er óhætt að segja að hátíðin hafi nú þegar unnið sér inn vinsældir og virðingu „fantastic“ kvikmyndahöfunda um allan heim. Í fyrra, á sínu öðru ári, fékk hátíðin sendar inn fjölda mynda frá 31 landi, hvaðanæva að úr heiminum. Hátíðin valdi 47 myndir til þátttöku á hátíðinni frá 22 löndum. Þar á meðal var hollenska myndin „I Am Not a Robot“ eftir Victoriu Warmerdam sem hreppti í kjölfarið Óskarinn sem besta leikna stuttmynd síðasta árs.
Einnig voru sýndar nýjar myndir frá Óskarstilnefndum höfundum eins og heiðursgesti hátíðarinnar, John R. Dilworth (Courage the Cowardly Dog) og Abigale Breslin (Little Miss Sunshine) sem og hinum þrefalda Emmy-verðlaunaða leikstjóra og stop-motion kvikara Michael Granberry, en verk hans má sjá í kvikmyndum eins og hinni Óskarsverðlaunuðu „Guillermo del Toro’s Pinocchio.
Brautryðjandinn og Óskarstilnefndi kvikarinn John R. Dilwort var heiðursgestur hátíðarinnar í fyrra og fetaði hann þar í fótspor Christopher Newman, framleiðanda “Game of Thrones & Lord of the Rings – Rings of Power”, heiðursgesti hátíðarinnar 2023.
Nýr verðlaunaflokkur
Í samstarfi við Nexus var ákveðið að fjölga verðlaunum og búa til nýjan verðlaunaflokk fyrir „animation/stopmotion“ myndir, enda hafa þær verið gríðarlega sterkar í dagskrá hátíðarinnar fyrstu tvö árin. Einnig var ákveðið að verlaunafé yrði hækkað úr 1.000 EUR í 1.500 EUR.


