2.9 C
Selfoss

Fyrstu 25 metra áframeldistankarnir teknir í notkun hjá First Water

Vinsælast

Landeldisfyrirtækið First Water hefur tekið í notkun fyrstu 25 metra áframeldistankana á athafnasvæði sínu í Þorlákshöfn og hefur fiskur verið settur í þrjá tanka. Félagið hefur starfrækt laxeldi á landi síðan 2022 í minni tönkum.

Félagið hefur fjárfest fyrir um 8 milljarða á árinu á athafnasvæði sínu við Laxabraut í Þorlákshöfn, fyrst og fremst í tönkum, búnaði og innviðum sem tengjast áframeldi. Gert er ráð fyrir að fyrsta fasa af 6 verði lokið á 3ja ársfjórðungi ársins 2027 og að framleiðslugeta í hverjum fasa verði 10.000 tonn af slægðum laxi. Það er á pari við framleiðslugetu stærstu landeldisfyrirtækja bæði í Noregi og Bandaríkjunum.

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, segir laxfiskinn dafna vel í tönkunum og að allur tæknibúnaður virki sem skyldi. „Við erum afar ánægð með þennan mikilvæga áfanga í uppbyggingu félagsins að taka þessa nýju tanka í rekstur. Á næstu vikum munum við hefja slátrun og útflutning á slægðum fimm kílóa laxi sem er mjög eftirsótt vara á alþjóðlegum mörkuðum og við höfum þegar fyllt upp í pantanir.”

Fólk að störfum
Mynd: First water

Atvinnumálaráðherra heimsótti athafnasvæði First Water

Hanna Katrín Friðriksson atvinnumálaráðherra heimsótti athafnasvæði First Water í síðustu viku þar sem stjórnendur og starfsmenn First Water kynntu starfsemina, sýndu henni nýju áframeldistankana og þá uppbyggingu sem átt hefur sér stað á svæðinu og fóru yfir framtíðaráform félagsins.

First Water flutti út um 1.300 tonn af laxi á síðasta ári en heildarútflutningur frá 2023 er um 2000 tonn. Eggert Þór segir að framleiðslan lofi mjög góðu þar sem um 94% þeirra afurða sem framleiddar hafa verið séu flokkaðar sem hágæðaafurðir (e. superior) og hafi hlotið mjög góðar viðtökur hjá erlendum kaupendum. „Það er mikil þörf á aukinni próteinframleiðslu í heiminum,” segir Eggert og bætir við að út frá magni og umhverfisáhrifum sé laxeldi einn hagfelldasti kosturinn þegar kemur að því.“

Nýjar fréttir