Mikið hefur rignt að Fjallabaki síðastliðinn sólarhring og ár og vötn bólgnað í miklum vatnavöxtum í kjölfar rigningarinnar.
Hópur frá Björgunarsveitinni Þorbirni sem nú sinnir hálendisvakt í Landmannalaugum hefur í morgun gætt þess að ferðalangar sem voru í Laugum komist klakklaust yfir vaðið á Námakvísl, sem alla jafna er líkt og tær bergvatnsá, en er nú sem ólgandi jökulfljót á að líta. Eftir að hafa aðstoðað einn bíl sem lenti í vandræðum var tekin ákvörðun um að fylgja öllum smærri jeppum yfir vöðin í Laugum til að koma í veg fyrir að þeir ferðalangar sem voru að fara úr Laugum lentu í samskonar vandræðum.
Nú er afar fátt í Landmannalaugum og Jökulgilskvíslin beljar sem stórfljót rétt við tjaldsvæðin.

Ljósmynd: Hálendisvaktin / Þorbjörn
Í sumar hafa verið talsverðir vatnavextir á Mælifellssandi og þó nokkrir ferðalangar lent þar í vandræðum. Nú er enn meira vatn þar og eftir könnunarleiðangur Hálendisvaktar í gær inn á Mælifellssand er ljóst að leiðin er illfær jafnvel mikið breyttum jeppum sem og stórum trukkum.
Rétt er að vara við ferðalögum inn á þessi svæði á meðan þessi staða er uppi.

