Sveitahátíð með rótgrónu sniði og fjölskyldustemning
Laugardaginn 23. ágúst 2025 verður hin árlega sveitahátíð Grímsævintýrin á Borg haldin með glæsibrag. Hátíðin, sem er skipulögð af Kvenfélagi Grímsneshrepps, hefur glatt gesti í áratugi og nýtur mikillar vinsælda meðal heimamanna sem og gesta hvaðanæva að. Þar ber hæst tombólan fræga, sem hefur verið ómissandi hluti hátíðarinnar allt frá árinu 1926.

Mynd: Aðsend
Hátíðin er sérstaklega hönnuð fyrir fjölskyldur og býður upp á fjölbreytta og líflega dagskrá fyrir alla aldurshópa.
Dagskráin í ár inniheldur meðal annars:
- Brúðubíllinn með Lilla í fararbroddi
- Tombólu með yfir 2.500 vinningum, vinningar á öllum miðum!
- Kaffisala og heimabakað góðgæti í Blúndukaffinu
- Markaður í félagsheimilinu
- Taiko trommusmiðja með Halla Valla
- Kynning á búnaði og tækjum frá Hjálparsveitinni Tintron
- Klifurveggur fyrir ævintýragjarna gesti
- Candyfloss, andlitsmálning, hópsöng og gleði fyrir börnin
- Frítt í sund á meðan á hátíðinni stendur
- Tjaldsvæði er á staðnum fyrir þá sem vilja dvelja yfir helgi
Hátíðin, sem fer fram að Borg í Grímsnesi, hefst klukkan 13.00 og stendur til kl. 16.00. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Mynd: Aðsend
„Við hvetjum gesti til að taka daginn frá og njóta sveitastemmningar, samveru og gleði með fjölskyldu og vinum. Grímsævintýrin á Borg hafa ávallt verið vettvangur samverustundar og jákvæðrar upplifunar – og það verður engin undantekning á því í ár,“ segir í tilkynningu frá Kvenfélagi Grímsneshrepps.
Nánari upplýsingar má nálgast á samfélagsmiðlum Kvenfélagsins og viðburðasíðum.

