3.5 C
Selfoss

Ferðamaður lenti í vandræðum við Hagavatn

Vinsælast

Upp úr klukkan 20 í gærkvöldi, miðvikudagskvöld, voru björgunarsveitir í uppsveitum Árnessýslu boðaðar út vegna ferðamanns sem talinn var í vandræðum í nágrenni við Hagavatn. Þar var einn á ferð erlendur ferðamaður, en sökum tungumálaörðugleika var óljóst hvar hann væri staddur og í hvers konar vandræðum hann væri í.

Þegar björgunarsveitir voru komnar vel áleiðis barst nákvæmari staðsetning frá Neyðarlínunni og var því ekki lengur um leit að ræða, eins og á horfðist í byrjun.

Björgunaraðgerðir

Ferðamaðurinn var þá staddur suður af Hagavatni og hafði farið slóða frá Skjaldbreiðarvegi, vestan við Brekknafjöll. Þar hafði hann ekið fram á bleytur í slóðanum og ákveðið að krækja fram hjá þeim, en ekki vildi þá betur til en svo að bíllinn festist í aurbleytu, á svæði sem er nýlega komið undan jökli.

En bíllinn var ekki bara fastur, heldur hafði einnig rifnað dekk og því ljóst að ferð yrði ekki haldið áfram.

Björgunarsveit við störf

Björgunarsveitir nýttu sérstakan loftpúða til að lyfta bílnum í aurbleytunni og skipta um dekk og í framhaldinu var hann dreginn upp úr festunni.

Ferðamanni var svo fylgt niður að Geysi þar sem hann hélt áfram för á eigin vegum og björgunarsveitir héldu heim.

Nýjar fréttir