3.5 C
Selfoss

Helga Jóhanna endurkjörin formaður FKA

Vinsælast

Helga Jóhanna endurkjörin formaður FKA Suðurland.

„Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár er gott yfirlit yfir metnaðarfullt og fjölbreytt starf þar sem haldnar voru hraðkynningar, nýliðakvöld á Ölverki, Jólarölt var haldið á Selfossi, Spa kvöld var í Skeiðalaug, fjallkonan virkjuð í tveggja daga ferð í Hólaskóg við Búrfell og viðburðurinn ,,Rómantík og vellíðan“ var með Auði Ottesen svo dæmi séu tekin,“ segir Helga Jóhanna Úlfarsdóttir formaður FKA Suðurlandi. Aðalfundur FKA – Suðurland var haldinn 12. ágúst síðastliðinn á Hraunvöllum og í mildu verði á fallegu kvöldi var kosin ný stjórn

Í stjórn FKA Suðurlandi starfsárið 2025-2026 eru þær:

 Helga Jóhanna Úlfarsdóttir – Formaður til tveggja ára

Íris Brá Svavarsdóttir – Gjaldkeri til eins árs

Gunnhildur Valgeirsdóttir – Ritari til tveggja ára

Ingunn Jónsdóttir – Varamaður til eins árs

Dagný Fjóla Jóhannsdóttir – Varamaður til eins árs

Helga Björg Þorgeirsdóttir – Varamaður til til tveggja ára

Á góðum degi Ljósmynd: FKA
Á góðum degi Ljósmynd: FKA

Suðurlandsdeild FKA er ein af fjölmörgu deildum Félags kvenna í atvinnulífinu. FKA Suðurland telur tæplega áttatíu konur á Suðurlandi sem taka ekki einungis þátt í öflugu starfi á svæðinu heldur einnig á höfuðborgarsvæðinu. Fjölmargar nefndir, deildir og ráð halda úti öflugu starfi og fjölbreyttri dagskrá hjá FKA eins og hreyfiaflsviðburði, verkefni, fræðslu og annað fjör sem konur sækja af landinu öllu.

 Mikil tilhlökkun að kortleggja starfsárið.

,,Það var góð mæting, sérstaklega var gaman að sjá formann og varaformann aðalstjórnar FKA, þær Ingibjörgu Salóme Sigurðardóttur og Guðlaugu Hrönn Jóhannsdóttur og framkvæmdastjóra félagsins Andreu Róbertsdóttur,“ segir Helga Jóhanna sem var endurkjörin formaður og nú til tveggja ára.

Ljósmynd: FKA

FKA konur í öllum landsbyggðum.

 Boðið var uppá veitingar og áttu félagskonur gæðastund saman og ræddu spennandi starfsár sem er fram undan og mikil tilhlökkun að kortleggja betur og kynna fyrir konum í deildinni.

Konur á Suðurlandi eru hvattar til að skrá sig í Félag kvenna í atvinnulífinu og í FKA Suðurland.

 

Nýjar fréttir