3.5 C
Selfoss

Tvö HSK-met sett í Brúarhlaupinu

Vinsælast

Brúarhlaupið fór fram í blíðskaparveðri á Sumar á Selfossi um síðustu helgi. Rúmlega 500 keppendur tóku þátt í nokkrum vegalengdum, bæði hlaupandi og hjólandi, og voru tvö HSK-met sett í hlaupinu.

Sigursveinn Sigurðsson bætti HSK-metið í 5 km götuhlaupi í flokki 45-49. Hann hljóp á 17,58 mínútum. Valdimar Bjarnason átti gamla metið, 19,37 mínútur, og var það sett í Reykjavík í apríl 2013.

Þá bætti Magnús Jóhannsson HSK metið í 5 km götuhlaupi í 70-74 ára flokki og hljóp á 27,07 mínútum. Hannes Stefánsson átti gamla metið sem var 38,31 mínúta, sett í Brúarhlaupinu fyrir tveimur árum.

Önnur úrslit voru eftirfarandi:

10 km hlaup karla
1. Kristján Svanur Eymundsson 34,41 mín
2. Elís Rafn Björnsson 36,21 mín
3. Magnús Þór Valdimarsson 36,57 mín

10 km hlaup kvenna
1. Fríða Rún Þórðardóttir 39,27 mín
2. Álfrún Tryggvadóttir 42,20 mín
3. Sara Árnadóttir 43,37 mín

5 km hlaup karla
1. Jón Kristófer Sturluson 16,08 mín
2. Guðmundur Daði Guðlaugsson 16,37 mín
3. Guðni Páll Pálsson 17,22 mín

5 km hlaup kvenna
1. Kristjana Pálsdóttir 19,32 mín
2. Snædís Halla Einarsdóttir 20,32 mín
3. Hanna María Jóhannsdóttir 21,59 mín

3 km skemmtiskokk karla
1. Andri Már Óskarsson 12,16 mín
2. Elimar Leví Árnason 13,02 mín
3. Elmar Andri Bragason 13,24 mín

3 km skemmtiskokk kvenna
1. Steinunn Heba Atladóttir 13,36 mín
2. Hulda Ingibjörg Böðvarsdóttir 14,04 mín
3. Hugrún Hekla Líndal Ingadóttir 14,23 mín

5 km hjólreiðar karla
1. Haraldur Ari Hjaltested 12,00 mín
2. Hróbjartur Vigfússon 12,34 mín
3. Ingi Hrafn Albertsson 13,37 mín

5 km hjólreiðar kvenna
1. Emilía Kolbrún Reynisdóttir Alvarez 13,02 mín
2. Saga Katrín Sigurðardóttir 15,18 mín
3. Elena Eir Einarsdóttir 15,33 mín

Nýjar fréttir