3.5 C
Selfoss

Nærandi list á Blómstrandi dögum

Vinsælast

Föstudaginn 15. ágúst kl. 17-19 opna hjónin Helga Sigurðardóttir og Viðar Aðalsteinsson listasýningu á Blómstrandi dögum. Þar verða til sölu og sýnis „Nærandi list“ úr smiðju Listar Sálarinnar og YANTRA PAINTINGS.

Málverkin á sýningunni eru hugleiðslu og innsæismyndir til styrkingar og gleði. Þau geta speglað vakandi nærveru og bent á þá blessun sem felst í innri kyrrð, jafnvægi og sátt.

Staðsetning er í Mánamörk 1, Hveragerði, í sal sjálfstæðismanna. Sýningin er opin laugardag og sunnudag 16. og 17. ágúst, kl. 11-19 báða dagana.

Helga kallar myndverk sín List Sálarinnar, innsæislist, sem er tilraun og viðleitni til að túlka andlega og mystíska upplifun og hugmyndir. Hún hefur farið ótroðnar slóðir í málaralist sinni og verið brautryðjandi og öðrum innblástur í hartnær 40 ár og haldið á fjórða tug einkasýninga frá árinu 1989.

Viðar hefur tengst og unnið með fólki að mannrækt og innri vinnu í um fimm áratugi. Viðar og Helga hafa skapað saman Yöntrulistaverkin, sem búa yfir þeim eiginleikum að vera afar gefandi og heilandi fyrir áhorfandann og það rými sem verkin eru staðsett. Þau sameina fallega og ríkjandi liti með hinu forna og heillavænlega Sri Yantra-tákni, sem stendur fyrir fullkominn samhljóm þess helga karl- og kvenlæga.

Þau hjónin hafa sýnt Yöntrulistaverkin frá árinu 2012. Þau búa og eru með vinnustofu í Hveragerði.

Nýjar fréttir