2.9 C
Selfoss

Eva María hársbreidd frá úrslitakeppni

Vinsælast

Eva María Baldursdóttir, Umf. Selfoss, stóð sig frábærlega er hún vippaði sér yfir 1,77 m í fyrstu tilraun á EM U23 sem fram fór í Bergen þann 17. júlí. Árangur Evu Maríu skilaði henni í 15. sæti keppninnar, eingöngu einu sæti frá úrslitakeppni hástökksins en 14 stúlkur komust í úrslitakeppnina sem fram fer þann 19. júlí nk. Eva María var komin yfir 1,81 en felldi naumlega með hælunum en sú hæð hefði skilað henni í úrslitakeppnina. 28 stúlkur tóku þátt í hástökkskeppninni en þær 14 stúlkur sem komust í úrslit stukku allar yfir 1,81 m. Frábær árangur hjá Evu Maríu en hún hefur hæst stokkið yfir 1,84 m á þessu ári.

Umf. Selfoss

Nýjar fréttir