Staða sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs í Ölfusi var auglýst á dögunum og rann umsóknarfrestur út 12.september sl.
7 umsóknir bárust og dró einn umsækjandi umsókn sína til baka.
Eftirtaldir sóttu um stöðuna:
| Nafn | Starfsheiti |
| Anný Ingimarsdóttir | Deildarstjóri |
| Arna Hrönn Aradóttir | Verkefnastjóri |
| Jóhanna Margrét Hjartardóttir | Menningar og frístundafulltrúi |
| Lína Björg Tryggvadóttir | Skrifstofustjóri |
| Valdimar O. Hermannsson | Fv. sveitarstjóri |
| Þórunn Jóna Hauksdóttir | Forstöðumaður |
Hagvangur, í samstarfi við bæjarstjórn, sér um ráðningarferlið og gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna á næstu dögum.

