Nú líður senn að sveitarstjórnarkosningum. Þá fá íbúar tækifæri á að kjósa fólk til setu í sveitarstjórn. Það veltur á miklu að hæfasta fólkið sé valið. Það skiptir ekki máli hvað listinn heitir sem kosinn er. Það sem skiptir meginmáli er hvaða stefnu hann er með og að henni sé fylgt. Það skiptir mjög miklu máli að áherslur séu réttar og að hlustað sé á vilja íbúanna þegar stórar ákvarðanir eru teknar.
Í Rangárþingi eystra hefur sveitarstjórn undanfarinna ára verið samtaka í uppbyggingu á hótelum og smáhýsum út um þorpagrundir. Allt í nafni ferðamennskunnar. Enginn munur hefur verið á meiri- eða minnihluta hvað þetta varðar. Ekkert tillit hefur verið tekið til fjölda eða staðsetningar húsanna. Aðeins samþykktar hugmyndir landeigendanna. Fjársterkir aðilar hafa seilst inn í sveitarfélagið og fengið öllu sínu framgengt í skjóli peninga. Leyfðar eru hótelbyggingar sem standa það lágt að það þarf dælubúnað til að dæla frárennslinu burt. Hótel eru byggð þar sem flóðahætta er skilgreind af almannavörnum. Ekki aðeins nauðsynlegar lóðir fyrir framkvæmdirnar eru teknar úr landbúnaðarnotum heldur heilu jarðirnar. Þetta er allt leyft með því hugarfari að það sé ógjörningur að neita jarðareigendum að framkvæma á eign sinni. Yfirvöld hafa þann rétt að neita að breyta bújörð í verslunar- og þjónustusvæði. Yfirvöld hafa þær skyldur við land og þjóð að vernda bestu ræktunarlönd en yfirleitt eru umræddar byggingar settar á bestu túnin.
Sveitarstjórn hefur auk þess ríkar skyldur til að vernda náttúruna. Tökum dæmi með fugla í huga. Ísland hefur ríkar alþjóðlegar skyldur til að vernda margar fuglategundir sem eiga varpstöðvar hér eða viðkomu á landinu. Sveitarfélögin hljóta að verða að framfylgja þessari skyldu t.d. með skipulagi byggðarinnar. Hver kofi sem byggður er úti í móa fælir vissar tegundir frá í 200 metra radíus. Þetta er vísindalega sannað. Skyndileg umferð og átroðningur gerir slíkt hið sama. Með sama áframhaldi í skipulagsóreiðunni og verið hefur undanfarið í Rangárþingi eystra þá gæti komið sá dagur að ekki heyrist í lóunni lengur. Ekki er heldur sama hvar eða hvernig skógur er settur niður.
Ef fram sem horfir þá er ekki langt að bíða þess að helstu náttúruperlur okkar séu komnar í einkaeigu gróðafíkla og aðgengi íbúanna sé þar með úr sögunni. Íbúa sem lítið hefur verið hlustað á af núverandi yfirvöldum. Ég fullyrði að ferðamenn séu ekki komnir til landsins til að horfa á misfalleg hótel í röðum framan við náttúruperlur okkar.
Hvers vegna er ekkert gert til að ýta undir fjölbreyttari starfsemi í sveitarfélaginu? Það er ekki ásættanlegt til framtíðar að setja öll eggin í sömu körfuna og treysta á ferðamennsku til langrar framtíðar. Það voru lagðar 15 milljónir kr. í sjóð til að kanna möguleika á jarðgöngum til Vestmannaeyja. Það hljóta að finnast aðrar 15 milljónir kr. til að kanna og skapa grundvöll undir fjölbreyttari starfsemi í Rangárþingi eystra. Starfsemi sem ýtti undir fasta búsetu í sveitarfélaginu en það gerir ferðamennskan ekki.
Það er þörf á nýju framboði í Rangárþingi eystra sem kæmi með nýja sýn á hlutina. Snúum við blaðinu.
Vigfús Andrésson

