-0 C
Selfoss

Leikskólamálin í Árborg

Vinsælast

Leikskólamálin í Árborg

Ellý gefur kost á sér

MÍ 11-14 haldið um helgina

Ein af grunnstoðum samfélagsins er starfsemi leikskóla. Þeir eru í flestum tilfellum reknir af sveitarfélögum en einnig eru nokkur fyrirtæki sem reka leikskóla í samvinnu við sveitarfélögin. Hér í Árborg er rekstur fimm leikskóla hjá sveitarfélaginu en einn hjá einkaaðilum og er virkt og gott samstarf á milli aðila. Leikskólamál hafa verið í forgrunni bæjaryfirvalda og verða áfram með góðu samtali við foreldra og starfsmenn. Stefnan er að bjóða ávallt upp á framsækna þjónustu og sveigjanleika fyrir fjölskyldur.

Námsgjald ekki hækkað 2026

Bæjarstjórn Árborgar tók þá ákvörðun við gerð fjárhagsáætlunar 2026 að hækka ekki námsgjald á leikskólum. Námsgjald er grunngjaldið sem er greitt fyrir hverja klukkustund á leikskóla mánudaga til fimmtudaga frá kl.8:00 – 16:00 og föstudaga frá kl. 8:00 – 14:00. Foreldrar hafa svo val um hversu mikla þjónustu þau vilja nýta í leikskólanum ásamt fæði, þjónustu milli kl. 14:00 – 16:00 á föstudögum og 15 mínútum fyrir og eftir opnunartíma ásamt skráningardögum.

Markmið Árborgar er að foreldrar hafi val um þjónustu og standa vörð um að grunngjöld séu í lágmarki. Það er því einungis hækkun á fæðisgjöldum og skráningardögum milli ára. Með þessu fyrirkomulagi er markmiðið að minna af launahækkunum foreldra fari í greiðslu leikskólagjalda. Mánaðargjald barns í leikskóla í Árborg sem nýtir 38 klst. á viku ásamt fæði, hækkar þá einungis um eitt prósent milli ára eða um 440 krónur á mánuði.

Styðjum við þjónustu dagforeldra

Sveitarfélagið Árborg hefur við úthlutun á vorin undanfarin tvö ár getað boðið börnum fædd út mars árið á undan leikskólapláss. Við upphaf aðlögunar að hausti eru yngstu börnin því um 18 mánaða gömul. Til að brúa bilið fyrir þau börn sem komast ekki strax inn á leikskóla er til staðar öflug þjónusta dagforeldra í sveitarfélaginu. Niðurgreiðir Árborg mánaðargjaldið til foreldra og hækkaði niðurgreiðslan árið 2025 og aftur um 3,5 prósent árið 2026 og verður 92.301 kr. fyrir barn undir 18 mánaða og 124.200 kr. fyrir börn sem eru eldri en 18 mánaða.

Enn eru tækifæri til úrbóta og mikilvægt að sveitarfélögin og ríkisvaldið haldi áfram að leita sameiginlegra leiða til að brúa bilið frá fæðingarorlofi til leikskóla. Þetta er sameiginlegt verkefni fyrir sömu íbúa á Íslandi og höfum við fulla trú á að það sé hægt ef samtalið er opið og lausnamiðað. Þetta málefni á að okkar mati að vera í forgrunni allra sveitarfélaga á næstu mánuðum og árum.

Fjölgum leikskólaplássum

Íbúum í Árborg hefur fjölgað undanfarin ár og samhliða verið bætt við leikskólaplássum til að mæta þeirri fjölgun. Líkt og sjá má á mynd voru 680 börn í leikskólum Árborgar 1.október 2025 og í upphafi árs 2026 eru þau orðin um 690. Fyrirhugað er að bæta um betur og er gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun að bæta við leikskóladeildum við leikskólann Jötunheima og Árbæ á næstu tveimur árum. Slíkt tryggir fjölgun leikskólaplássa til ársins 2030 miðað við áframhaldandi fjölgun íbúa. Samhliða er hafin undirbúningar að byggingu nýs leikskóla sem gæti opnað um 2030. Markmiðið er að efla áfram þjónustu við barnafjölskyldur en um leið hafa sveigjanleika fyrir foreldra um val á þjónustu.

Fjöldi barna í leikskólum Árborgar 2023-2025.

 

Breytt fyrirkomulag reynst vel

Nýtt fyrirkomulag leikskóla, með lækkun mánaðargjalds og innleiðingu skráningardaga, var samþykkt áfram á síðasta ári eftir góða reynslu foreldra, barna og starfsmanna á tilraunatímanum. Veturinn 2024-2025 voru innan allra leikskóla í Árborg í heildina aðeins um sjö lokunardagar vegna forfalla og á tveimur leikskólum þurfti aldrei að grípa til lokunnar deilda.

Slíkt er vissulega dæmi um frábæra þróun sem mikilvægt er að styðja til framtíðar. Auk þess hefur verið ákveðið að bjóða áfram upp á uppeldisnámskeið í öllum leikskólum sem hluta af aðlögun barna við upphaf leikskólagöngu. Námskeiðin hafa fengið góð viðbrögð enda markmiðið að efla fræðslu og samtal milli leikskóla og foreldra.

Óhætt er að fullyrða að staðan er góð í þessum málaflokki. Að sjálfsögðu er ávallt vilji til að leita útbóta sem bætt geta stöðu barnafjölskyldna. Fyrir liggur að meta skynsemi þess að bæta heimgreiðslum við þjónustu Árborgar, styðja enn frekar við dagforeldra eða fjölga leikskólaplássum og bjóða yngri börnum pláss á leikskóla. Einnig þurfa sveitarfélögin að sameinast í samtali við ríkisvaldið og finna sameiginlega lausn til að brúa bilið frá fæðingarorlofi til leikskóla. Með opnum hug getum við gert góða stöðu enn betri.

Bragi Bjarnason,
bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg

Brynhildur Jónsdóttir,
formaður fræðslu- og frístundanefndar

Nýjar fréttir