Nú stendur yfir ein stærsta samgönguframkvæmd landsins við bakka Ölfusár norðan Selfoss. Um er að ræða brúarframkvæmd sem lengi hefur verið beðið eftir og mun létta verulega á þeirri miklu umferð sem í dag fer yfir Ölfusárbrú og í gegnum Selfoss. Ljóst er að um verður að ræða mikilvæga samgöngubót fyrir svæðið allt.
Nýtt mannvirki verður til
Hin nýja brú verður 330 metra löng stagbrú með 60 metra háum turni á Efri-Laugardælaeyju. Brúargólfið verður 19 metra breitt og gert er ráð fyrir svokölluðum 2+1 vegi með aðskildum akstursstefnum, auk göngu-, hjóla- og reiðleiðar.
Með tilkomu nýrrar brúar skapast ekki aðeins tækifæri til að bæta samgöngur, heldur einnig til að skapa nýtt kennileiti. Mannvirki af þessari stærðargráðu verður hluti af ásýnd svæðisins til áratuga, ef ekki alda. Nafnið sem því verður gefið mun lifa með samfélaginu og verða hluti af sögu þess.

Virðing við söguna
Í þessari umræðu er mikilvægt að gleyma ekki þeirri brú sem þegar stendur. Ölfusárbrú hefur þjónað samfélaginu í átta áratugi og er ekki aðeins samgöngumannvirki, heldur hluti af sjálfsmynd staðarins. Fyrir marga er hún einfaldlega „brúin“, óaðskiljanlegur hluti af daglegu lífi og ásýnd Selfoss.
Það væri því bæði eðlilegt og viðeigandi að sýna þessari sögulegu brú þá virðingu sem hún á skilið með því að hún haldi nafni sínu. Nafnið ber með sér sögu, minningar og samfellu sem mikilvægt er að varðveita.
Með tilkomu nýrrar brúar skapast tækifæri til að horfa bæði til fortíðar og framtíðar. Að varðveita nafnið Ölfusárbrú fyrir eldri brúna væri táknræn viðurkenning á mikilvægi hennar, á sama tíma og nýja brúin fengi eigið nafn sem markar nýjan kafla í samgöngusögu svæðisins.
Nafnasamkeppni fyrir nýju brúna
Hin nýja brú hefur frá upphafi og undirbúningi verið kölluð „Ný Ölfusárbrú“ og er það skoðun margra að um vinnuheiti sé að ræða. Eðlilegt er að svo stórt og mikilvægt mannvirki fái eigið nafn.
Því hafa bæjaryfirvöld í Sveitarfélaginu Árborg, í samráði við Vegagerðina, ákveðið að efna til nafnasamkeppni fyrir nýju brúna. Markmiðið er að gefa íbúum og öðrum áhugasömum tækifæri til að leggja fram tillögur að nafni sem endurspeglar staðinn, söguna og mikilvægi mannvirkisins.
Skipuð hefur verið valnefnd sem fer yfir innsendar hugmyndir og leggur fram tillögu að nafni til staðfestingar í bæjarstjórn Árborgar. Nýja brúin mun þjóna samfélaginu um ókomna tíð. Nafnið sem henni verður gefið mun verða hluti af daglegu lífi, kortum, leiðarlýsingum og sameiginlegri vitund íbúa.
Það er því ekki aðeins verið að nefna brú, heldur að skrifa nýjan kafla í sögu staðarins.
Hægt er að senda inn tillögur af nafni inná Betri Árborg https://www.betraisland.is/group/31701
Sveinn Ægir Birgisson
Formaður bæjarráðs Sveitarfélagsins Árborgar.

