Í fyrsta sinn í 20 ár býður Samfylkingin fram lista í sveitarfélaginu Ölfusi. Listinn er skipaður Samfylkingarfólki og félögum í Ölfusi og kynnti formaður flokksins og forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, hópinn á opnum fundi á Heima Bistro í Þorlákshöfn kl. 18 í kvöld. Fullt var út úr dyrum og mikil ánægja með listann.
Oddviti listans er Gunnsteinn R. Ómarsson sem var bæjarstjóri í Ölfusi á árunum 2013-2018, á þeim tíma þegar samstillt bæjarstjórn minni- og meirihluta lagði línur og hóf m.a. framkvæmdir við stækkun á höfninni sem leiddi til þess sögulega uppgangs sem hefur verið í Ölfusi síðustu árin. Gunnsteinn er þó ekki mættur til leiks til þess að verða bæjarstjóri á ný, heldur til þess að miðla sinni reynslu inn í bæjarstjórn næstu fjögur árin en hann starfar sem framkvæmdastjóri Sameykis í dag.
Á listanum er fjölbreyttur hópur fólks með ríka þekkingu á ýmsum krókum og kimum í samfélaginu. Berglind Friðriksdóttir sálfræðingur sem nú situr í bæjarstjórn fyrir Íbúalistann er í öðru sæti, Pálmi Þór Ásbergsson, íþróttafræðingur og aðstoðarforstöðumaður í sértækri félagsmiðstöð, er í þriðja sæti og Bryndís Sigurðardóttir, viðskiptafræðingur, markaðs- og útflutningsfræðingur, kerfisfræðingur og fyrrverandi bæjarstjóri með meiru skipar fjórða sætið.
Listann í heild sinni má sjá hér að neðan.
Samfylkingin og félagar í Ölfusi hafa gert samkomulag við bæjarstjóraefni utan listans sem verður kynntur til leiks þegar nær dregur kosningum, en um reynslumikla manneskju í sveitarstjórnarmálum er að ræða.
Á fundinum í kvöld sögðu Gunnsteinn og Berglind frá helstu áherslumálum listans í komandi kosningum. Áhersla verður á að skipulagsmál í sveitarfélaginu taki mið af lífsgæðum íbúa og að ekki verði þrengt að hafnarsvæðinu, að vinna markvisst að því að rækta þorpsandann og velferð íbúa með ýmsum aðgerðum og byggja upp fjölbreytt og öflugt atvinnulíf. Þá kom einnig fram að efla á samstarf við íbúa um málefni sveitarfélagsins og styrkja samstarf við önnur sveitarfélög.
Samfylkingin og félagar í Ölfusi
- Gunnsteinn R. Ómarsson, framkvæmdastjóri
- Berglind Friðriksdóttir, sálfræðingur
- Pálmi Þór Ásbergsson, aðstoðarforstöðumaður í sértækri félagsmiðstöð
- Bryndís Sigurðardóttir viðskiptafræðingur
- Sigurður Freyr Vestmann Sigurvinsson, viðskiptafræðingur og ráðgjafi
- Sigfús Benóný Harðarson, aðalvarðstjóri hjá ríkislögreglustjóra
- Hrafnhildur Lilja Harðardóttir, sálfræðingur
- Sylwia Dzwoniarska, túlkur og starfsmaður í leikskóla í fæðingarorlofi
- Gunnar Sigurðsson, tölvunarfræðingur og bruggmeistari
- Guðrún Bjarnadóttir, sjálfstætt starfandi við fræðslu og handverk
- Helga Ósk Gunnsteinsdóttir, læknanemi
- Hannes Gunnarsson, trésmíðameistari og eftirlaunamaður
- Hjördís Erlingsdóttir, ritari á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
- Guðmundur Oddgeirsson, eftirlaunamaður og fyrrverandi hitt og þetta
Fréttatilkynning frá S-listanum í Ölfusi


