Verslunin Álnavörubúðin, sem hingað til hefur alltaf verið staðsett í Hveragerði, hefur nú opnað á Selfossi við Larsenstræti 2 undir nafninu Álnó. Eigandi verslunarinnar, Dóróthea Gunnarsdóttir, segir opnunina afar ánægjulega og að viðtökurnar hafi verið afar góðar.
Álnavörubúðin hefur verið í rekstri í rúm 38 ár og tók Dóróthea við rekstrinum árið 2007. Ástæða húsnæðisskiptanna er að eigandi húsnæðisins í Hveragerði, þar sem Álnavörubúðin var upprunalega, sagði upp leigusamningnum síðasta sumar.
„Það er mjög skiljanlegt að þau vilji fara að taka húsnæðið í gegn og fara aðra leið. Þetta var og er bara minn happadrættisvinningur eins og oft er sagt þegar maður er yfir sig ánægður,“ segir Dóróthea í samtali við Dagskrána.
Dóróthea segir nýju staðsetninguna á Selfossi hafa orðið fyrir valinu því hana langaði ekki að flytja verslunina til Reykjavíkur og ekkert hentugt húsnæði var í boði í Hveragerði.
„Einnig voru nokkrir sem höfðu samband við mig út af húsnæðum á Selfossi. Ég er svo glöð í dag að hafa komið inn á Selfoss og mér heyrist fólk vera ánægt með að fá búðina á svæðið,“ segir Dóróthea.
Staðsetningin og húsnæðið segir Dóróthea alveg frábært. Frá opnuninni á Selfossi hefur verið mikið um að vera og viðskiptavinir almennt mjög sáttir. „Þetta er geggjað húsnæði, bjart og fallegt útsýni. Á gamla staðnum vissi maður ekki hvernig veðrið var því það sást varla út,” segir hún og hlær.
Í kjölfar flutninganna var skódeildin stækkuð verulega, sem og sunddeildin. Dóróthea hyggst einnig leggja aukna áherslu á útivistarfatnað en tekur fram að hún hlusti alltaf vel á óskir og þarfir viðskiptavina. „Maður verður bara að hlera fólk hvað vantar. Nýr staður, önnur búð,“ segir hún.
Álnó er með hefðbundna vetrar- og sumaropnunartíma. Nú stendur vetraropnun yfir í Álnó. Á vetraropnunartíma opnar búðin klukkutíma seinna en á sumaropnun en er þó allar helgar opin í styttri tíma, bæði laugardaga og sunnudaga.


