Framboðslisti D-listans í Hveragerði var samþykktur samhljóða á fjölmennum félagsfundi þriðjudaginn 3. mars. Ingimar Guðmundsson, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, mun koma til með að leiða listann í komandi sveitarstjórnarkosningum. Með samþykkt listans markar D-listinn upphafið að undirbúningi fyrir komandi kosningar.
Listinn er skipaður samstilltum hópi fólks með fjölbreytta reynslu úr samfélaginu og sameiginlega sýn um að nálgast verkefni sveitarfélagsins af ábyrgð og fagmennsku. Áhersla verður lögð á gott samstarf, skýr vinnubrögð og málefnalega umræðu.
Á næstu vikum hefst stefnumótunarvinna D-listans í samtali við íbúa og hagaðila í sveitarfélaginu. Markmiðið er að greina þau málefni sem skipta samfélagið mestu máli og leggja fram skýra og ábyrga sýn á næsta kjörtímabili.
„Ég er einstaklega stoltur að fá að leiða D-listann í komandi sveitarstjórnarkosningum og jafnframt þakklátur félagsmönnum fyrir traustið sem mér er sýnt,” segir Ingimar. “Við munum leggja ríka áherslu á ábyrga stjórnun og fagleg vinnubrögð með það að markmiði að gera Hveragerði að enn betri stað til að búa á. Hér ólst ég upp og hér vil ég ala mín börn upp.”
D-listinn leggur jafnframt áherslu á að kosningabaráttan verði byggð á málefnalegri umræðu og virku samtali við íbúa. Með samstilltu átaki listans og samfélagsins alls er markmiðið að styrkja þann grunn sem þegar er til staðar og skapa traustan farveg fyrir áframhaldandi þróun sveitarfélagsins.
Frambjóðendur D-listans í Hveragerði:
- Ingimar Guðmundsson, sérfræðingur
- María Rún Þorsteinsdóttir, ráðgjafi
- Sigmar Karlsson, deildarstjóri
- Hjalti Helgason, múrarameistari
- Karitas Róbertsdóttir, líffræðingur
- Íris Svavarsdóttir, bókari
- Einar Ísberg, háskólanemi
- Hekla Björt Birkisdóttir, iðjuþjálfi
- Sigurður Einar Guðjónsson, byggingatæknifræðingur
- Guðfinna Ýr Sumarliðadóttir, hjúkrunarfræðingur
- Hallgrímur Þorgilsson, húsasmíðameistari
- Nishadi Umaya, framhaldsskólanemi
- Feng Hannesdóttir, aðstoðarmaður í eldhúsi
- Eyjólfur Kolbeins, matreiðslumeistari
Fréttatilkynning frá D-listanum í Hveragerði



