Í mars fagnar Selfosskirkja 70 ára afmæli kirkjunnar og 80 ára afmæli kirkjukórs Selfoss og verður tímamótanna minnst með fjölbreyttri dagskrá allan marsmánuð. Guðbjörg Arnardóttir sóknarprestur Selfosskirkju segir afmælið tilvalið tilefni til að kynna sér starf kirkjunnar.
Guðbjörg hefur starfað sem sóknarprestur Selfosskirkju í rúm 11 ár. Að hennar sögn er það fyrst og fremst fólkið sem gerir starfið gefandi og að fá að vera í lifandi samskiptum við fjölbreyttan hóp af fólki.
Selfosskirkja er hluti af Árborgarprestakalli og er Guðbjörg meðal þriggja presta sem starfa í sameiningu. Innan prestakallsins eru auk Selfosskirkju meðal annars Stokkseyrarkirkja, Eyrabakkakirkja og kirkjurnar í Flóanum.
Afmælishátíð Selfosskirkju
Afmælinu verður fagnað með sérstakri dagskrá allan mars. „Við ætlum að vera með afmælisdagskrá allan mánuðinn. Það er messa á sunnudögum nánast allt árið, þó að það séu stundum breytingar yfir sumartímann. Í afmælismánuðinum ætlum við þó að lyfta sunnudögunum enn meira upp og bjóða upp á ólíkar messur hvern sunnudag,“ segir Guðbjörg. Hún segir að messurnar séu í grunninn þær sömu og kirkjan býður upp á yfir veturinn en í mars verði sett „extra krydd“ í hverja messu og þær gerðar sérstaklega hátíðlegar. Hápunktur hátíðarinnar verður síðan á pálmasunnudag, 29. mars, þegar haldin verður hátíðarmessa þar sem biskup Íslands, vígslubiskup og prófastur verða meðal gesta.
Breyttir tímar
Guðbjörg segir starf kirkjunnar hafa tekið ákveðnum breytingum frá því hún hóf störf, ekki síst í auknu samstarfi og skipulagi innan prestakallsins. Hún segir þó að ákveðinn kjarni haldist alltaf sá sami innan messunar.
„Sunnudagur sem er svolítið þessi fasti punktur og svo reynum við alltaf að hafa eitthvað í miðri viku,“ segir Guðbjörg. Sem dæmi nefnir hún þriðjudagssamverur sem eru nú haldnar annan hvern þriðjudag þar sem kirkjan fær nýjan gest í hverri viku og fólk kemur saman.
Barnastarf kirkjunnar undir stjórn æskulýðsfulltrúa, Sjafnar Þórarinsdóttur, er einnig öflugt og Guðbjörg segir ánægjulegt að það hafi náð sér vel á strik eftir Covid heimsfaraldurinn.
„Eins og hjá svo mörgum öðrum þá þurfti að rífa starfið upp á nýtt eftir covid, kynna upp á nýtt og okkur tókst það, við náðum alveg aftur þessum sama fjölda inn,“ segir Guðbjörg. Kórastarf hefur einnig gengið vel og bæði barnakór og unglingakór eru vel sóttir.
Að ná til fólksins í takt við nútímann
Guðbjörg segir að ein af helstu áskorunum kirkjunnar í dag sé að ná til fólks og tala inn í samtímann án þess að missa sjónar á þeim gildum sem kirkjan stendur fyrir. „Við viljum að fólk finni að það eigi heima í kirkjunni, að það langi að koma hingað og að við eigum þessa samleið með fólkinu,” segir Guðbjörg.
Kirkjan mætir fólki á mörgum mikilvægum tímamótum í lífinu, allt frá skírnum og fermingum til útfarar. Guðbjörg talar um mikilvægi þess að vera til staðar hvenær sem er, fólk sé alltaf að ganga í gegnum sitt.
„Að tala til fólks og hjálpa þeim og miðla þessari von sem er svo mikilvæg ekki síst í heiminum eins og hann er í dag. Við eigum okkur von og ég vil að fólk viti að við eigum okkur stað til þess að miðla voninni, tala inn í ótta eða kvíða og finna í kirkjunni frið og kærleika.”
Kirkjan er einnig með sálgæslutíma þar sem hverjir sem er mega hringja og bóka viðtal eða senda tölvupóst. „Þú getur pantað og komið í sálgæsluviðtöl sem er bara mjög gott að fara í þegar maður er á tímamótum í lífinu,” segir Guðbjörg.
Að lokum hvetur Guðbjörg fólk til að líta við í kirkjuna, ekki síst á hátíðarmessurnar í tilefni afmælisins. „Það þarf ekki að vera neitt að til að koma í kirkju, bara að koma og prófa sig áfram og taka þátt og kynnast starfi okkar. Allir eru velkomnir.”
SEG

