Óperusöngvarinn Ari Ólafsson heldur tónleika á Sviðinu í miðbæ Selfoss í apríl. Um er að ræða tímamót fyrir staðinn, en þetta verður í fyrsta skipti sem ópera er flutt á Sviðinu.
Ari starfar um þessar mundir í London við uppfærslu The Phantom of the Opera, þar sem hann fer með hlutverk The Phantom og Raoul. Hann mun þó koma til Íslands í apríl og nýta tækifærið til að koma fram á Selfossi.
„Mér líst mjög vel á að koma á Sviðið. Ég hef heyrt að þar sé virkilega góður hljómburður og hlakka ég mikið til að syngja fyrir gesti,“ segir Ari. Á tónleikunum mun Ari flytja aríur og sígild söngleikjalög.
Viðburðurinn er liður í því að auka fjölbreytni í menningarlífi miðbæjar Selfoss og bjóða upp á nýja tegund tónlistar á Sviðinu og það í samstarfi við verslunina Motivo í miðbæ Selfoss.
Þar sem Motivo Verzlun býður á tónleikana er áhugasömum bent á að koma í verslunina til að skrá sig fyrir fríum miða þann 9. apríl.

