6.9 C
Selfoss

Ljóða- og kammertónleikar í Skálholtskirkju

Vinsælast

Désirée Mori mezzósópran, Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir sellóleikari og Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari flytja fjölbreytt verk sem tengjast hverfulleika í Skálholtsdómkirkju föstudaginn 10. apríl kl. 17. Meðal annars er á dagskrá frumflutningur á nýju sönglagi eftir svissneska tónskáldið Samuel Cook, sem var sérstaklega samið af þessu tilefni. Einnig verða flutt undurfögur ljóð og ljóðaflokkar eftir Önnu Þorvaldsdóttur, Ölmu Mahler, Frank Bridge og Jake Heggie, auk hádramatískrar sónötu Samuels Barber fyrir selló og píanó. Aðgangur er ókeypis. Veitingastaðurinn Hvönn í Skálholti verður opinn frá 16:00-20:00 og tilvalið að njóta kvöldsins áfram þar eftir tónleika.

Nýjar fréttir