0 C
Selfoss

Fyrsta bók útgáfunnar Blakks

Vinsælast

Bókin Í framlínu – lögreglumenn segja frá er komin út og er hún þegar komin í helstu bókaverslanir. Í framlínu er fyrsta bók útgáfunnar Blakks á Selfossi. Höfundur er Júlíus Ó. Einarsson þjóðfræðingur, sem jafnframt er fyrrverandi lögreglumaður. Í bókinni lýsa tugir lögreglumanna starfi sínu, einstökum verkefnum og upplifunum á meira en 250 blaðsíðum. Einnig eru þar hugleiðingar um eðli lögreglustarfins og áhrif þess á þá sem því sinna og þeirra nánustu. Viðmælendur í bókinni eru af báðum kynjum, öllum aldri, flestum starfsstigum og hvarvetna af landinu. Viðlíka innsýn hefur ekki áður verið gefin í lögreglustarfið hérlendis. Um leið er bókin öðrum þræði sögulegt yfirlit löggæslu síðustu fjörutíu ára.

Lesa má stutta útdrætti úr nokkrum frásögnum á vefsíðu útgáfunnar: Í framlínu – lögreglumenn segja frá – Blakkur.

Nýjar fréttir