-10.5 C
Selfoss

45 ára afmæli og hátíðardagskrá Tónlistarskóla Mýrdalshrepps

Vinsælast

Tónlistarskólinn í Vík fagnar 45 ára afmæli á þessu ári. Þann 10. febrúar hélt Tónskóli Mýrdalshrepps upp á Dag tónlistarskólanna með veglegri hátíðardagskrá og tónlistarkeppninni „Flygill“, sem haldin var í þriðja sinn.

Í forgrunni keppninnar að þessu sinni var tónlist eftir Sigvalda Kaldalóns, en sérstakur flokkur var tileinkaður flutningi á verkum hans.

Keppnin var fyrst haldin fyrir þremur árum að frumkvæði tónskólastjórans Alexöndru Chernyshovu og hefur hún fest sig í sessi sem einn af hápunktum skólastarfsins. Í ár tóku þátt nemendur á aldrinum 5 til 62 ára, sem sýnir vel þann fjölbreytta hóp sem skólinn þjónar.

Alls bárust 54 innsendingar og heiðursdómari var tónlistarkonan Anna Björnsdóttir. Það er sérstaklega ánægjulegt að segja frá því að haustið 2023, að frumkvæði Önnu, eignaðist skólinn glæsilegan Yamaha-flygil sem nú prýðir sal tónlistarskólans og er orðinn hjarta hans.

Í upphafi hátíðardagskrár sungu nemendur og foreldrar úr Syngjandi fjölskyldu tvö lög, Góðan daginn og Krummi krunkar úti. Að því loknu söng Laufey Atladóttir Waagfjörð, söngnemandi, lagið Á íslensku má alltaf finna svar. Einnig komu fram söng-, píanó- og gítarnemendur, auk þess sem kammerkórinn Harpa flutti lög eftir Sigvalda Kaldalóns, svo sem Á Sprengisandi, Þú eina hjartað yndið mitt, Ísland ögrum skorið, Sveitin mín, Mamma ætlar að sofna, Ég lít í anda liðna tíð, Suðurnesjamenn og fleiri verk.

Salurinn fylltist af fallegum tónum og stolti. Þegar velja á besta flutning á lagi eftir Sigvalda Kaldalóns var það ómögulegt, tónlist hans er svo falleg og túlkanirnar voru svo ólíkar og einstakar. Því var ákveðið að sleppa að gefa í þessum flokki verðlaun.

Veitt voru verðlaun fyrir bestu teikningar, sögur og frumsamin lög í mismunandi aldursflokkum. Margir hæfileikar komu fram, bæði ungir og eldri, og var greinilegt að metnaður, hugmyndaauðgi og tónlistargleði voru í fyrirrúmi.

Fyrir bestu teikningu í yngsta flokki fengu Samuel Chocholowicz og Helena Kalandyk verðlaun. Í unglingaflokki fengu Ögmundur Óli Brynjarsson og Laufey Atladóttir Waagfjörð verðlaun fyrir bestu teikninguna. Fyrir besta frumsamda lagið í barnaflokki fengu Hilmir Blær Jónsson og Laufey Atladóttir Waagfjörð verðlaun fyrir lagið Vinir hittast, part 1. Í ævintýratónlistarsögukeppni barna vann Ásmundur Kristinn Einarsson með söguna Refur og lömbin. Í flokki fullorðinna vann Paul Henning með söguna Ansuz og Sigurður Magnússon með ljóðið Sveitin mín.

Að verðlaunaafhendingu lokinni fengu allir þátttakendur viðurkenningarskjal og glaðning, því það er þátttakan og gleðin sem skipta mestu máli.

Eftir tónleikana var boðið upp á gómsætar vöfflur og kaffi í notalegri samveru og lauk deginum með samsöngnum Syngjum saman og bíókvöldi fyrir tónlistarnemendur.

Fallegur söngur, litrík listaverk og frumleg tón- og ljóðaverk sýndu glöggt hversu fjölbreyttur og skapandi hópur nemenda og tónlistarkennara er við Tónlistarskóla Mýrdalshrepps.

Nýjar fréttir