-0.4 C
Selfoss

Margmála ljóðasamvera í Listasafni Árnesinga ú Hveragerði

Vinsælast

Laugardaginn 21. mars klukkan 15:00 verður margmála ljóðasamvera í Listasafni Árnesinga, Hveragerði. Viðburðurinn er í samstarfi Bókabæina austanfjalls og listasafnsins og tilefnið er alþjóðadagur ljóðsins.

Á allsherjarþingi UNESCO í París 1999 var samþykkt að gera þennan dag að alþjóðlegum ljóðadegi með það að markmiði að styðja við málfræðilega fjölbreytni með ljóðrænni tjáningu og auka tækifæri á að tungumál í útrýmingarhættu heyrist. Dagurinn gefur einnig tilefni til að heiðra skáld, endurvekja munnlegar hefðir ljóðaflutninga, stuðla að lestri, ritun og kennslu ljóða og samruna ljóðlistar og annarra lista eins og tónlistar og myndlistar.

Á viðburðinum munu ljóðalesarar frá átta löndum flytja ljóð á eigin tungumálum, ljóð sem þau velja sjálf og er þetta tilvalið tækifæri til að upplifa fjölbreytni tungumála og menningar.

Sérstakir gestir verða Hugrún Birna Hjaltadóttir fiðluleikari og gítarleikarinn Daniel Cassedy. Hugrún Birna leggur stund á klassískan fiðluleik en áheyrendur geta allt eins átt von á að þau Daníel bregði fyrir sig annars konar tónlist.

Safnið verður opið frá klukkan 12:00 og eru gestir hvattir til að koma tímanlega, njóta fjölbreyttra sýninga í safninu, kíkja í safnabúðina og jafnvel fá sér kaffi og kruðerí í veitingasölunni.

Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomnir.

Nýjar fréttir