0 C
Selfoss

Landsþekktur einstaklingur leiðir nýjan stjórnmálaflokk í Sveitarfélaginu Árborg

Vinsælast

Árborgaraflið, nýr stjórnmálaflokkur í Sveitarfélaginu Árborg, mun halda opinn kynningarfund í dag. Fundurinn verður haldinn á Sviðinu í miðbæ Selfoss og hefst hann kl. 14.

Á fundinum verður framboðslisti flokksins kynntur opinberlega í fyrsta sinn ásamt stefnumálum hans. Í tilkynningunni frá flokknum kemur fram að oddviti listans sé landsþekktur einstaklingur, en nafn hans verður opinberað á fundinum.

„Framboðslistinn okkar er samansettur af fjölbreyttum hópi einstaklinga sem hafa öll það sameiginlegt að vilja gera sveitarfélagið okkar að betri stað,“ segir Gústaf Lilliendahl, kosningastjóri flokksins.

Á fundinum verður boðið uppá brauðtertur og eru íbúar hvattir til að mæta, kynna sér stefnu flokksins og hitta frambjóðendur.

Nýjar fréttir