5.1 C
Selfoss

Samfélag byggt á virðingu og réttlæti

Vinsælast

Sem íbúi í Grímsnes- og Grafningshreppi, síðastliðinn áratug, hef ég kynnst þeirri einstöku ró og nánd sem einkennir sveitalífið. Þegar við hjónin ákváðum að flytja frá höfuðborgarsvæðinu var það ekki aðeins í leit að kyrrð, heldur einnig löngun til að vera hluti af samfélagi þar sem samheldni og samvinna skipta máli. Sú ákvörðun hefur reynst okkur afar dýrmæt enda hefur þessi fallega sveit orðið okkar heimasveit.

Á þessum árum hef ég tekið virkan þátt í félagslífinu hér, bæði í gegnum félagasamtök og fjölbreytta viðburði. Hér hef ég kynnst dásamlegu fólki sem leggur sitt af mörkum til að efla samfélagið og gera það enn betra. Styrkur sveitarfélagsins liggur einmitt í fólkinu sem þar býr; krafti þess, elju, samvinnu og samkennd. Þetta hefur verið mér leiðarljós í störfum mínum, þar sem ég hef mætt vilja fólks til að leggja sitt af mörkum og vinna saman að sameiginlegum markmiðum og láta gott af sér leiða.

Það er mér mikilvægt að samfélagið okkar byggist á virðingu, sanngirni og jafnrétti. Allir íbúar eiga að finna að rödd þeirra skiptir máli, óháð aldri, bakgrunni og aðstæðum eða hvar þeir eru búsettir; í frístundahúsum, á Borg, Sólheimum eða sveitabæjum. Með því að hlusta á hvert annað og taka mið af ólíkum sjónarmiðum getum við skapað traust og samstöðu sem er grunnur að farsælli þróun.

Framtíð sveitarfélagsins ræðst af því hvernig við bregðumst við sífelldum breytingum samfélagsins. Ég tel að sveitarfélagið hafi alla burði til þess að mæta breyttri samfélagsmynd og aukinni samfélagsvitund. Við eigum ekki að vera hrædd við að taka skrefið í átt að betri framtíð. Með því að leiða saman ólíka íbúa sveitarfélagsins og virkja krafta þeirra allra getum við eflt samfélagið enn frekar og gert það sterkara til framtíðar.

Við þurfum að halda áfram að rækta þau gildi sem við viljum að einkenni búsetu í hreppnum en um leið vera tilbúin að takast á við breytingar og vinna með þeim. Það er lykilatriði fyrir framtíð okkar allra að við stöndum saman og vinnum með, en ekki gegn hvert öðru. Þessi nálgun þarf að ná til allra, án undantekninga.

Virk þátttaka íbúa – forsenda framtíðar

Ég tel að með virkri þátttöku íbúa, opnu samtali og sameiginlegri ábyrgð getum við haldið áfram að byggja upp samfélag sem við getum verið stolt af. En sú uppbygging byggist ekki aðeins á ákvörðunum stjórnvalda heldur líka á ábyrgð hvers og eins okkar. Við sem íbúar þurfum að leggja okkar af mörkum, sýna frumkvæði, styðja hvert annað og leggja rækt við jákvætt viðhorf í daglegu lífi. Það er í sameiginlegu átaki sem styrkur samfélagsins birtist, þegar allir taka þátt og leggja sitt af mörkum, stórt sem smátt.

Samfélag sem byggist ekki á útilokun af neinu tagi, heldur samheldni og samvinnu, verður sterkara og heilbrigðara. Með því móti getum við skapað fyrirmyndarsamfélag sem fyrirmynd fyrir önnur sveitarfélög.

Ég býð mig fram með það að leiðarljósi að allir njóti jafnréttis. Ég kem með mikilvæga reynslu úr félagsstörfum og hef unnið með fjölbreyttum hópi fólks með ólíkar skoðanir. Sú reynsla hefur kennt mér mikilvægi samvinnu, virðingar og þess að vinna saman að sameiginlegum markmiðum.

Það er mín einlæga ósk að leggja mitt af mörkum til þessarar þróunar, svo við getum tryggt að Grímsnes- og Grafningshreppur verði áfram góður staður til að lifa, starfa og ala upp komandi kynslóðir eða eldast. Samfélag þar sem ábyrgð, samvinna og virðing fara saman og allir finna að þeir skipti máli.

Sandra Gunnarsdóttir
Skipar 6. sætið á Ö–lista í Grímsnes- og Grafningshreppi

Nýjar fréttir