Þann 28. mars sl. á 8 ára afmæli bæjarmálafélagsins Okkar Hveragerði, var kynntur framboðslisti til bæjarstjórnarkosninga 2026 og ný heimasíða sett í loftið okkarhveragerdi.is. Það er gleðilegt að kynna með stolti fjölbreyttan lista með fjölda nýrra og öflugra einstaklinga í bland við reyndari fulltrúa framboðsins. Efstu sæti listans eru eftirfarandi: Oddviti er Lárus Jónsson, 2. sætið skipar Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, 3. sætið Jónas Guðnason og 4. sætið Sandra Lind Brynjarsdóttir.
Bæjarmálafélagið Okkar Hveragerði fékk þrjá bæjarfulltrúa kjörna í síðustu kosningum og átti í árangursríku og uppbyggjandi meirihlutasamstarfi við fulltrúa Framsóknar í Hveragerði á kjörtímabilinu. Sandra Sigurðardóttir, fráfarandi forseti bæjarstjórnar, skipar heiðurssæti á listanum ásamt Nirði Sigurðssyni, fráfarandi bæjarfulltrúa og einum af stofnendum Okkar Hveragerðis. Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, núverandi bæjarfulltrúi framboðsins, verður því sá bæjarfulltrúi sem fylgir bæjarmálafélaginu inn í næsta kjörtímabil. Einnig var það tilkynnt að bæjarstjóraefni Okkar Hveragerðis í kosningunum í vor er Pétur G. Markan, núverandi bæjarstjóri Hveragerðisbæjar.
Listi Okkar Hveragerðis til bæjarstjórnarkosninga árið 2026 er:
- Lárus Jónsson,
Körfuboltaþjálfari, íþróttafræðingur og MA í alþjóðasamskiptum - Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,
Lögmaður, innanhússráðgjafi, tónlistarkona og bæjarfulltrúi - Jónas Guðnason,
Jarðfræðingur, eldfjallafræðingur og vatnamælingamaður - Sandra Lind Brynjarsdóttir,
Grunnskólakennari og deildarstjóri á stuðningsheimili fyrir börn - Ívar Dagur Sævarsson,
Tónlistarmaður og nemi - Brynja Hrafnkelsdóttir,
Skordýrafræðingur og teymisstjóri - Eyþór Atli Finnsson,
Hlaðvarpsþáttastjórnandi og öryggisráðgjafi - Embla Werner Guðleifsdóttir,
Stuðningsfulltrúi í Grunnskólanum í Hveragerði - Guðjón Óskar Kristjánsson,
Deildarstjóri fasteigna, húskerfa og svæða virkjana ON - Halldóra Jóna Guðmundsdóttir,
Framreiðslusveinn - Hrafn Andrés Harðarsson,
Bókavörður og skáld - Anna Jórunn Stefánsdóttir.
Talmeinafræðingur, sellóleikari og kennari - Njörður Sigurðsson,
Sagnfræðingur og bæjarfulltrúi - Sandra Sigurðardóttir,
Þingmaður og forseti bæjarstjórnar

