0.6 C
Selfoss

Met í skattheimtu í Árborg?

Vinsælast

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað staðhæft að skattahækkanir þær sem þeir réðust í á kjörtímabilinu hafi verið nauðsynlegar til að koma í veg fyrir að sveitarfélagið færi yfir 150% viðmiðið sem er hámark leyfilegs skuldahlutfalls sveitarfélaga skv. sveitarstjórnarlögum. Þessi fullyrðing Sjálfstæðisflokksins á skattahækkunum sínum stenst hinsvegar enga skoðun. Skattahækkanirnar voru óhóflegar og gengu gegn öllu meðlahófi.

Það var einkum tvennt sem gerði það að verkum að skuldahlutfallið fór nokkuð hratt niður árið 2024. Annars vegar varð mikil tekjuaukning þ.s. fasteignaskattar höfðu hækkað um rúm 78% að meðaltali frá 2021, 10% aukaálag á útsvar 2024, hærra framlag úr Jöfnunarsjóði Sveitarfélaga og almenn tekjuaukning vegna launaskriðs og fólksfjölgunar. Hins vegar að það var nánast sett á framkvæmdastopp hjá Svf. Árborg eftir mikla uppbyggingu innviða árin á undan þegar þáverandi meirihluti var að hreinsa upp innviðaskuldir fyrri meirihluta D-listans.

Þegar borið er saman hvernig hugsanleg þróun á skattheimtu og skuldahlutafalli hefði orðið ef engar breytingar hefðu verið gerðar á skattheimtu m.v. forsendur frá 2018 kemur í ljós að tekjur hefðu aukist aðeins hægar og skuldahlutfallið ekki farið eins mikið niður og raun varð á sem skipti auðvitað engu máli í stóra samhenginu eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Verjum íbúana fyrir hækkandi kostnaði

Að mínu mati var megin verkefnið að verja íbúana, heimilin og fyrirtækin í Árborg fyrir hækkandi framfærslu- og rekstrarkostnaði vegna hækkana á vöxtum og verðbólgu í kjölfar Covid-19. Þess í stað ákvað meirihluti D-listans að auka á vanda íbúanna með gjaldskrárhækkunum, hækkunum á fasteignagjöldum og 10% aukaálagi á útsvar.

Hér fyrir ofan má sjá hversu háa upphæð í aukaskatt íbúar þurftu að greiða 1. júní 2025. Ef tekið er dæmi af hjónum sem hafa samtals 20 milljónir í árstekjur (fyrir skatta) þá fengu þau  bakreikning uppá tæplega 300 þúsund (eftir skatt).

Þessi skattur var algjörlega ónauðsynlegur og þrátt fyrir mótmæli minnihlutans þá varð því ekki hnikað að leggja hann á íbúanna. Þessi skattlagning hefði alltaf átt að vera síðasta úrræðið en ekki eitt það fyrsta. Íbúarnir áttu að njóta vafans því það var vissulega svigrúm til að endurskipuleggja fjármál sveitarfélagsins án íþyngjandi skattlagningar sem nam um 1500 milljónum.

78% hækkun fasteignagjalda

Þá víkur sögunni að fasteignagjöldunum. Þau hækkuðu að meðaltali um 78% á kjörtímabilinu í Árborg. Ef skoðað er raundæmi fyrir 130 m² íbúð í raðhúsi á Selfossi hér fyrir neðan má sjá að fasteignagjöld hækka úr tæplega 400 þúsund í tæplega 700 þúsund frá 2021-2026. Hækkunin nemur um 300 þúsundum og kemur að mestu fram 2023 og 2024 vegna hækkunar á fasteignamati um tæp 70% milli 2022 og 2023.

Litlar sem engar leiðréttingar komu á móti til lækkunar og því er um að ræða tæplega 78% skattahækkun í gegnum fasteignagjöld á kjörtímabilinu staðreynd í þessu tilfelli.

Að auki voru miklar almennar gjaldskrárhækkanir á kjörtímabilinu sem margar hverjar voru úr öllu samhengi við eðlilega verðlagsþróun og má benda á að sumar þeirra skáru sig verulega úr eins hækkanir á Sumarfrístund – lengd viðvera um rúm 189% og hækkun á stökum aðgangi í sund fyrir eldri borgara eða 145%.

Met í skattheimtu

Það er því ekki ofsögum sagt að meirihluti D-lista hafi sett met í skattheimtu á íbúa Árborgar á kjörtímabilinu sem nú er að líða. Skattahækkanir sem ekki telja í tugum þúsunda heldur hundruðum þúsunda fyrir meðal íbúann. Skattheimta sem í flestum tilfellum var óþörf, íþyngjandi og rýrði lífsgæði svo um munaði.

Það skiptir máli hverjir stjórna og að þeir fari ekki á taugum og grípi með léttúð til óhóflegra skattahækkana án þess að taka tillit til þess hvaða neikvæðu áhrif það kæmi til með að hafa fyrir íbúana. Stóra verkefni sveitarstjórnarfólks er að forgangsraða gæðum og byrðum og gæta þar sanngirni og hófsemi í hvívetna.

Samfylkingin og óháðir munu á næstunni kynna stefnumál sín fyrir Árborg framtíðarinnar þar sem saman fara öflug atvinnustefna og fyrsta flokks þjónusta fyrir íbúa sveitarfélagsins. Það er mikilvægt að nýr meirihluti vindi ofan af skattahækkunum Sjálfstæðisflokksins í áföngum á næsta kjörtímabili svo bæta megi lífsgæði og rekstrarumhverfið fyrir íbúa og fyrirtæki í Svf. Árborg.

Sigurjón Vídalín Guðmundsson,
oddviti Samfylkingarinnar og óháðra í Árborg.

Nýjar fréttir