Eitt af helstu áherslumálum Framsóknar í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2022 var að veita forsjáraðilum barna á biðlista eftir leikskólaplássi heimgreiðslur að loknu fæðingarorlofi. Málið var til umræðu í nefndum sveitarfélagsins snemma á kjörtímabilinu en fékk ekki brautargengi. Ég hef gagnrýnt bæjarstjórn bæði á bæjarstjórnarfundi og í greinarskrifum fyrir að mæta ekki foreldrum að loknu fæðingarorlofi, enda hafa börn í sumum tilvikum þurft að bíða í allt að 27 mánuði eftir leikskólaplássi.
Það var því ánægjulegt að sjá að tillaga að reglum um heimgreiðslur var samþykkt á fundi bæjarráðs í gær. Málið mun því fara til umsagnar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins áður en það fer að lokum til afgreiðslu og samþykktar í bæjarstjórn. Við í Framsókn munum hið minnsta beita okkur fyrir því að þetta mikilvæga mál nái fram að ganga.
Meirihluti bæjarstjórnar á hrós skilið fyrir að hlusta á gagnrýni og leggja þetta mál fram fyrir kosningar. Það er ekki síst mikilvægt nú þegar dagforeldrum hefur fækkað á kjörtímabilinu af ýmsum ástæðum og þeim dagvistunarúrræðum því fækkað. Tillaga um greiðslu upp á 110.000 krónur á mánuði er góð byrjun.
En betur má ef duga skal og verkefninu er alls ekki lokið. Sveitarfélagið þarf enn að ráðast í að fjölga plássum í dagvistun barna. Samhliða fjölgun íbúa í sveitarfélaginu hafa biðlistar eftir leikskólaplássum verið langir og börn oft fengið pláss seint. Eitt mikilvægasta verkefni bæjarstjórnar á komandi kjörtímabili er að stytta biðlista og tryggja að innviðir fylgi uppbyggingu nýrra hverfa, en komi ekki á eftir.
Samkvæmt nýsamþykktri húsnæðisáætlun HMS er ljóst að uppbygging innviða þarf að vera gríðarleg á komandi árum.
Matthías Bjarnason
Oddviti xB í Árborg

