-0.5 C
Selfoss

Jafnræði í Árborg má ekki ráðast af póstnúmeri

Vinsælast

Sveitarfélagið Árborg er fjölkjarnasamfélag, það er sveitarfélag með fleiri en einn þéttbýliskjarna. Því fylgja bæði tækifæri og áskoranir. Mikilvægast er að tryggja jafna þjónustu við alla, óháð búsetu.

Í Árborg búa nú tæplega þrettán þúsund manns. Af þeim búa ríflega þrettán hundruð í smærri byggðakjörnum: Eyrarbakka, Stokkseyri, Tjarnabyggð og fyrrum Sandvíkurhreppi. Það þýðir að um einn af hverjum tíu íbúum sveitarfélagsins býr í þessum smærri byggðum og hlutfallið verður enn hærra þegar dreifbýlið er tekið með í reikninginn.

Þessir íbúar eiga, eins og aðrir íbúar Árborgar, að njóta allrar þeirrar samfélagsþjónustu sem sveitarfélaginu er skylt að veita íbúum á öllum aldri. Það er einfaldlega spurning um jafnræði. Allir greiða sitt til samfélagsins, meðal annars í formi fasteignagjalda, útsvars og annarra gjalda og eiga því rétt á því að þjónustan sé aðgengileg og raunhæf í daglegu lífi.

Skólastarf er hjartað í hverri byggð

Árborg vex hratt og sveitarfélagið býður upp á fjölbreytta og góða búsetukosti, hvort sem fólk kýs að búa í stórum bæ, smærri byggðum eða í dreifbýli. En til að þessi fjölbreytni fái að njóta sín þarf að styðja hana með markvissari hætti.

Leikskólar og skólar eru hjartað í hverri byggð og forsenda farsællar byggðaþróunar, vegna þess að öflugt skóla- og frístundastarf ræður úrslitum um búsetu fjölskyldufólks. Það þarf að styðja betur við skólahald á Eyrarbakka og Stokkseyri en nú er gert og til lengri tíma mun það skila sér í kraftmeira samfélagi með auknum fjölda fjölskyldufólks.

Í fjölbreyttu sveitarfélagi eru samgöngur innanbæjar og á milli staða líka mikilvægar fyrir greiðan aðgang að velferðarþjónustu, verslun og menningu. Þar skiptir máli að horfa á daglegt líf fólks eins og það er í raun: Tíma, kostnað, skutl og skipulag.

Þetta snýst ekki um þægindi heldur um byggðaþróun, jöfn tækifæri og framtíðarsýn og þar með styrk Árborgar sem heildar. Við megum ekki horfa á smærri byggðakjarna sem jaðarsvæði heldur sem mikilvægan hluta af okkar sameinaða sveitarfélagi.

Áhrif íbúa

Jafnræði íbúa snýst líka um rödd fólksins. Íbúalýðræði þarf að vera virkt og tengjast með beinum hætti við sveitarstjórnina.

Betri Árborg er jákvæður vettvangur fyrir samráð íbúa og bæjaryfirvalda, þar sem íbúar fá tækifæri til að koma tillögum og hugmyndum á framfæri. En íbúar í öllum byggðakjörnum eiga að hafa raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif á ákvarðanir sem snerta þeirra nærumhverfi og daglegt líf. Sveitarfélagið verður sterkara þegar allir íbúar upplifa að á þá sé hlustað og fólk nýtur sömu tækifæra og sömu þjónustu, hvar sem það býr í sveitarfélaginu. Þannig byggjum við samfélag trausts, samstöðu og jafnræðis.

Árborg á að vera eitt sveitarfélag í orði og á borði – samfélag þar sem staða íbúa ræðst ekki af póstnúmeri, heldur af jafnræði.

Margrét K. Sverrisdóttir,
íbúi á Eyrarbakka og skipar 7. sæti á lista Samfylkingar og óháðra í Árborg

Nýjar fréttir