-2.2 C
Selfoss

Heiðrún leiðir lista Viðreisnar í Árborg

Vinsælast

Heiðrún Kristmundsdóttir verkefnastjóri leiðir nýjan lista Viðreisnar í Árborg. Listinn var staðfestur á félagsfundi Viðreisnar í Árnessýslu nú fyrir stundu. Þetta er í fyrsta sinn sem hægt verður að kjósa lista Viðreisnar í sveitarstjórnarkosningum í Árborg. Í öðru sæti er Guðný Björk Pálmadóttir, hönnuður og nýsköpunarverkfræðingur. Það þriðja skipar Þorsteinn Haukur Harðarson ráðgjafi. Í fjórða sæti er Birgir Marteinsson lögfræðingur og fimmta sætið skipar Ingunn Guðmundsdóttir viðskiptafræðingur.

„Þetta er öflugur listi sem ég hlakka mikið til að vinna með í komandi baráttu,“ segir Heiðrún Kristmundsdóttir, nýr oddviti Viðreisnar í Árborg. „Við ætlum að setja öfluga þjónustu við barnafjölskyldur á oddinn og leiðir til að takast á við vaxtarverki stækkandi sveitarfélags hér í Árborg. Við þurfum að halda áfram að taka til í rekstri bæjarfélagsins svo við getum forgangsraðað í þágu grunnþjónustu.”

Listi Viðreisnar í Árborg er svo skipaður:

  1. Heiðrún Kristmundsdóttir, verkefnastjóri
  2. Guðný Björk Pálmadóttir, hönnuður og nýsköpunarverkfræðingur
  3. Þorsteinn Haukur Harðarson, ráðgjafi
  4. Birgir Marteinsson, lögfræðingur
  5. Ingunn Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur
  6. Trausti Jóhannsson, teymisstjóri
  7. Sandra Guðmundsdóttir, forstöðukona
  8. Daníel Leó Ólason, raforkuverkfræðingur
  9. Ellen Amilía Óladóttir, ráðgjafi
  10. Valdimar Gylfason, rafvirki
  11. Alísa Rut Andradóttir, nemi
  12. Óli Kristján Ármannsson, blaðamaður og almannatengill
  13. Lovísa Lillý Davíðsdóttir, framhaldsskólanemi
  14. Sigurður Sólmundsson, verktaki
  15. Laufey Ósk Magnúsdóttir, ljósmyndari
  16. Sindri Ólafsson, rafvirki
  17. Björg Þorkelsdóttir, húsmóðir
  18. Þorvaldur Óskar Gunnarsson, viðskiptafræðingur
  19. Selma Klara Gunnarsdóttir, nemi
  20. Gísli Halldór Halldórsson, sviðsstjóri
  21. Sigurbjörg Björgvinsdóttir, hjúkrunarfræðingur á eftirlaunum
  22. Eyjólfur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri

Nýjar fréttir