6.1 C
Selfoss

Framfaralistinn býður fram í annað sinn

Vinsælast

Nú styttist í kosningar til sveitarstjórna landsins og í Flóahreppi mun Framfaralistinn bjóða fram í annað sinn.

Framfaralistinn hlaut þrjá fulltrúa kjörna í síðustu kosningum og hefur setið í meirihluta sveitarstjórnar á yfirstandandi kjörtímabili. Samstarf fulltrúa í sveitarstjórn hefur verið afar gott og markvisst hefur verið unnið að því að styrkja rekstur, uppbyggingu og þjónustu sveitarfélagsins.

Rekstur Flóahrepps hefur verið öflugur á kjörtímabilinu og hefur sveitarfélagið skilað jákvæðum rekstrarafgangi hvert ár. Árið 2022 nam afgangurinn tæpum 12 milljónum króna og árið 2024 náðist besti rekstrarárangur í sögu sveitarfélagsins, þegar afgangurinn nam 179 milljónum króna. Þetta hefur tekist þrátt fyrir umtalsverðar fjárfestingar í innviðum, þar á meðal í vatnsveitu ásamt því að bæta í þjónustu.

Framkvæmdir og uppbygging innviða hafa verið í brennidepli. Hönnun viðbyggingar við Flóaskóla er á lokastigi og stefnt er að því að hefja framkvæmdir strax í sumar og mun bygging skólahúsnæðis standa yfir á hluta næsta kjörtímabils. Þá er uppbygging íbúðahverfis við Þingborg komin af stað en fyrirhugað er að úthluta fyrstu 20 lóðunum í sumar í nýju, 60 íbúða hverfi sem markar upphaf skipulagðrar þéttbýlismyndunar á vegum sveitarfélagsins sjálfs.

Framfaralistinn hyggst byggja áfram á þessum trausta grunni á komandi kjörtímabili.

Listinn er skipaður fjölbreyttum hópi fólks með víðtæka reynslu og þekkingu, sem er tilbúið að halda áfram þeirri framfarabraut sem mörkuð hefur verið á undanförnum árum.

Listinn í heild sinni:

  1. sæti – Árni Eiríksson, teymisstjóri og oddviti sveitarstjórnar
  2. sæti – Hulda Kristjánsdóttir, sveitarstjóri og sveitarstjórnarfulltrúi
  3. sæti – Walter Fannar Kristjánsson, laganemi og sveitarstjórnarfulltrúi
  4. sæti – Hrafhildur H. Guðmundsdóttir, reiðkennari og sérfræðingur
  5. sæti – Hjalti Guðmundsson, húsasmíðameistari, kennari og sveitarstjórnarfulltrúi
  6. sæti – Sveinn Orri Einarsson, vélfræðingur
  7. sæti – Sigrún Hrefna Arnardóttir, kjólaklæðskeri og ferðaþjónustubóndi
  8. sæti – Sigurjón Reynisson, nemi í rafvirkjun
  9. sæti – Helena Hólm, hársnyrtimeistari og ferðaþjónustubóndi
  10. sæti – Stefán Geirsson, bóndi

Fréttatilkynning frá Framfaralistanum

Nýjar fréttir