0.6 C
Selfoss

Framboðslisti Framsóknar í Árborg samþykktur

Vinsælast

Framboðslisti xB í Árborg fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var kynntur og samþykktur einróma á fjölmennum félagsfundi Framsóknarfélags Árborgar í gærkvöldi.

Á listanum er breiður og öflugur hópur fólks með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífi og samfélagi Árborgar. Þar er fólk úr ólíkum áttum samfélagsins sem sameinast um vilja til að leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar sveitarfélagsins.

Reynslan á listanum er mikil. Tveir af núverandi bæjarfulltrúum Framsóknar halda áfram á listanum og þar að auki er þar að finna fólk sem hefur starfað í sveitarstjórnum og á Alþingi, ásamt nýju fólki sem kemur inn með ferska sýn.

  1. Matthías Bjarnason, tæknimaður og varabæjarfulltrúi
  2. Ellý Tómasdóttir, bæjarfulltrúi, verkefnastjóri og forvarnarfulltrúi
  3. Arnar Freyr Ólafsson, bæjarfulltrúi, framkvæmdastjóri og fyrirtækjaráðgjafi
  4. Guðrún Rakel Svandísardóttir, skólastjóri
  5. Magnús Benediktsson, rekstrarstjóri
  6. Kristín Júlía Hannesdóttir, sjúkraþjálfari
  7. Árdís Lilja Gísladóttir, grafískur hönnuður
  8. Guri Hilstad Ólason, ráðgjafi og starfsmaður sendiráðs
  9. Óskar Hróbjartsson, fangavörður
  10. Ólafur Már Ólafsson, húsasmiður og bóndi
  11. Ólafía Ingólfsdóttir (Lóa), eldriborgari
  12. Þorvaldur Guðmundsson, umsjónarmaður fasteigna hjá HSU
  13. Böðvar Arnarsson, húsasmiður í meistara- og slökkviliðsnámi
  14. Erna Guðjónsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur
  15. Gissur Jónsson, starfsmaður Umf. Selfoss
  16. Iða Marsibil, framkvæmdastjóri
  17. Guðmundur Heiðar Ágústsson, slökkviliðs og sjúkraflutningamaður
  18. Sólveig Þorvaldsdóttir, bygginga- og jarðskjálftaverkfræðingur
  19. Ragnar Geir Brynjólfsson, organisti og fyrrverandi kerfisstjóri
  20. Gils Einarsson, fyrrverandi formaður Suðurlandsdeildar VR
  21. Kolbrún J. Erlendsdóttir, formaður Suðurlandsdeildar VR og formaður Framsóknarfélags Árborgar
  22. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi þingmaður

Nýjar fréttir