D-listinn í Ölfusi hefur tilkynnt að Elliði Vignisson verði bæjarstjóraefni flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Elliði, sem er lærður klínískur sálfræðingur, hefur gegnt embætti bæjarstjóra í Ölfusi frá árinu 2018. Hann hefur jafnframt yfir 25 ára reynslu af sveitarstjórnarmálum og starfaði áður sem bæjarstjóri Vestmannaeyja í 12 ár.
Í tilkynningu frá D-listanum kemur fram að á starfstíma Elliða hafi verið lögð áhersla á ábyrga fjármálastjórn, fjölgun íbúa, uppbyggingu innviða og aukna þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Þar segir jafnframt að reynsla hans, þekking á rekstri sveitarfélagsins og skýr sýn á áframhaldandi uppbyggingu geri hann að sterkum kosti til að leiða sveitarfélagið á næsta kjörtímabili.
Flokkurinn hyggst kynna nánar áherslur sínar á næstu vikum undir kjörorðunum „Áfram af ábyrgð“.

