Sjálfstæðisflokkurinn í Árborg kynnti á laugardaginn sl. nýsamþykktan framboðslista sinn að afloknum fundi fulltrúaráðs sjálfstæðifélaganna í sveitarfélaginu. Listinn samanstendur af einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn, reynslumiklum einstaklingum og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á vettvangi sveitarstjórnarmála. Sérstakt ánægjuefni er hversu mikið af ungu fólki tekur sæti á listanum.
Listinn er skipaður eftirfarandi:
- Bragi Bjarnason, bæjarstjóri
- Sveinn Ægir Birgisson, formaður bæjarráðs
- Linda Björk Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri
- Brynhildur Jónsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi og bæjarfulltrúi
- Þórhildur Ingvadóttir, umsjónarm. Lyfju og varabæjarfulltrúi
- Kjartan Björnsson, rakari og forseti bæjarstjórnar
- Sigurbjörg Guðmundsdóttir, laganemi
- Sigríður Ósk Harðardóttir, rekstrarfulltrúi
- Gísli Rúnar Gíslason, kennaranemi
- Esther Ýr Óskarsdóttir, lögfræðingur
- Ívar Marinó Lillendahl, læknir
- Björg Agnarsdóttir, mannauðs- og launasérfræðingur
- Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur
- Margrét Anna Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi
- Alexander Már Egan, þjónustufulltrúi
- Embla Líf Guðmundsdóttir, umönnun
- Olga Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri
- Atli Dagur Guðmundsson, nemi
- Jóhann Jónsson, framkvæmdastjóri
- Andri Hrafn Hallsson, tannlæknir
- Júlía Katrín Sigmundsdóttir, háskólanemi
- Ari Thorarensen, fangavörður
„Ég er ótrúlega stoltur af því að leiða þennan góða, öfluga og skemmtilega hóp inn í sveitarstjórnarkosningarnar í vor. D-listinn í Árborg vill vinna áfram að hagsmunum íbúa í Sveitarfélaginu Árborg og við hlökkum til að eiga samtöl við íbúa á næstu vikum um málefni samfélagsins.“ Sagði Bragi Bjarnason, oddviti listans af þessu tilefni.

