-2.4 C
Selfoss

Bryndís Gunnlaugsdóttir er bæjarstjóraefni fyrir Ölfus

Vinsælast

Traust, fagmennska og samheldni

Það er auðvelt að tala um góða stjórnsýslu. Það er hins vegar erfiðara að láta hana skila sér í því sem íbúar finna fyrir á hverjum degi: skýr samskipti, traust ákvarðanataka, þjónusta sem virkar og síðast en ekki síst, tilfinningin að við séum öll í sama liði.

Þegar leitað er að bæjarstjóra fyrir sveitarfélag eins og Ölfus skiptir því máli að horfa til manneskju sem hefur bæði faglega burði og næmni fyrir samfélaginu. Okkur á lista Samfylkingarinnar og félaga í Ölfusi finnst Bryndís Gunnlaugsdóttir standa upp úr sem afar sterkt bæjarstjóraefni og höfum gert samkomulag við hana um að stýra sveitarfélaginu okkar ef árangur framboðsins í komandi kosningum gefur kost á því.

Hverju leitum við að í fari bæjarstjóra?

Bæjarstjóri er ekki bara framkvæmdastjóri. Hann er líka brúarsmiður. Sá sem tryggir að ákvarðanir séu teknar af yfirvegun, að ferlar séu faglegir og að fólk upplifi virðingu, jafnvel þegar skoðanir eru ólíkar.

Við teljum að árangur sveitarfélagsins ráðist af þremur atriðum sem verða að fara saman:

– fagmennsku og vandaðri stjórnsýslu
– skýrum samskiptum og trausti
– og mannlegri nálgun þar sem náungakærleikur og samheldni samfélags er ávallt leiðarljós

Á bak við góða stjórnsýslu er yfirleitt blanda af menntun, reynslu og karakter.

Þarna kemur Bryndís sterk inn. Hún kemur með heildstæða reynslu sem nýtist sveitarfélaginu á marga vegu.

Bryndís Gunnlaugsdóttir í stuttu máli

Bryndís Gunnlaugsdóttir er Grindvíkingur að upplagi. Hún er 45 ára lögfræðingur og býr í dag í Hveragerði ásamt manni sínum og dóttur. Hún er mikil körfuboltaáhugakona, hefur spilað með fjölda liða og einnig komið að þjálfun og rekstri íþróttafélaga. Fyrir starf sitt í körfuboltahreyfingunni hefur hún hlotið silfurmerki KKÍ og ÍSÍ. 

Hún er með lögfræðimenntun og kennir sveitarstjórnarrétt og stjórnsýslu í tveimur háskólum. Hún hefur starfað hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og KPMG. Og hún hefur líka setið við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar, sem kjörinn fulltrúi og forseti bæjarstjórnar.

Bryndís sat í bæjarstjórn í Grindavík í fimm ár og þar af var hún forseti bæjarstjórnar í fjögur ár. Ef Bryndís verður ráðin bæjarstjóri Ölfuss mun hún ásamt fjölskyldunni flytja í Þorlákshöfn og verða virkur þátttakandi í samfélaginu.

Það skiptir máli. Ekki bara vegna þess hvar fólk býr, heldur vegna þess að sterk tengsl við samfélagið auka skilning, ábyrgð og nærveru í starfi.

Þekking og samvinna sem skilar árangri

Í sveitarfélagi næst bestur árangur þegar skýr samskipti, traust og sameiginleg ábyrgð fara saman. Bryndís þekkir vel mikilvægi samvinnu innan starfsliðs, milli stjórnsýslu og kjörinna fulltrúa og einnig milli sveitarfélaga.

Við teljum að það sem einkenni Bryndísi sérstaklega sé að hún sameinar fagmennsku og mannlega nálgun. Hún skilur að góð stjórnsýsla snýst ekki aðeins um reglur, ferla og ákvarðanir, heldur líka um samskipti, virðingu og hæfni til að vinna með ólík sjónarmið.

Í sínum störfum hefur Bryndís lagt áherslu á gott samstarf og að byggja brýr milli fólks og hlutverka. Hún hefur skýran skilning á því hvernig samstarf starfsfólks, stjórnsýslu og kjörinna fulltrúa þarf að vera til að sveitarfélag starfi vel. Hún hefur jafnframt lagt áherslu á góða samvinnu meirihluta og minnihluta, enda er það forsenda vandaðrar málsmeðferðar og heilbrigðrar sveitarstjórnarmenningar.

Og svo er annað sem skiptir sífellt meira máli: sveitarfélög starfa ekki í tómarúmi. Samstarf milli sveitarfélaga skiptir máli, bæði þegar kemur að þjónustu, þróun verkefna og sameiginlegum hagsmunamálum. Þar teljum við að reynsla hennar og nálgun muni nýtast Sveitarfélaginu Ölfusi afar vel.

Samfélagsleg seigla: þegar hlutirnir eru erfiðir skiptir leiðtogastíll mestu 

Stundum reynir mest á sveitarfélög þegar þau standa frammi fyrir flóknum verkefnum sem krefjast bæði fagmennsku og næmni fyrir fólki. Þar á Bryndís sterka reynslu.

Hún var verkefnastjóri við sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar. Þar kom hún að ferlinu frá upphafi til enda. Fyrst í óformlegum viðræðum kjörinna fulltrúa, síðan í formlegu sameiningarferli með áherslu á samráð við íbúa, fyrirtæki og hagsmunasamtök og loks við innleiðingu sameiningarinnar þar sem breytingastjórnun og gott samstarf við starfsfólk sveitarfélaganna skiptu sköpum.

Sameiningarferli felur í sér heildstæða endurskoðun á rekstri, þjónustu, stjórnsýslu, starfsumhverfi, samfélagsanda og framtíðarsýn. Þess vegna nýtist sú reynsla ekki aðeins þar sem sveitarfélög standa frammi fyrir sameiningum, heldur einnig í hverju því sveitarfélagi sem vill efla starfsemi sína, styrkja samfélagið og byggja upp traust til framtíðar.

Sem dæmi um fjölbreytta reynslu Bryndísar sem einnig nýtist sveitarfélaginu leiddi hún fjárhagslega endurskipulagningu Grindavíkurbæjar í kjölfar efnahagshrunsins, hefur unnið með fjölda byggðasamlaga, bæði á Suðurlandi og víðar á landinu, og hefur verið í stjórn eða starfað með Samtökum orkusveitarfélaga, Hafnasambandi Íslands og Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga. Hún hefur því víðtæka þekkingu á helstu hagsmunamálum sveitarfélagsins.

Að auki hefur hún kennt stjórnskipunar-, stjórnsýslu- og sveitarstjórnarrétt á háskólastigi.

Bæjarstjóri sem vinnur af fagmennsku og byggir upp samheldni

Ölfus þarf bæjarstjóra sem tengir saman fagmennsku, góða stjórnsýslu og traust samstarf. Við erum sannfærð um að Bryndís Gunnlaugsdóttir býr yfir öllum þessum eiginleikum.

Hún kemur með reynslu sem er bæði djúp og fjölbreytt. Hún kemur með hæfni til að hlusta, tengja fólk saman og vinna af festu. Og hún kemur með vilja til að vera hluti af samfélaginu: ekki bara í starfi, heldur í daglegu lífi.

Við trúum því að með Bryndísi fái Ölfus bæjarstjóra sem vinnur af fagmennsku, byggir upp samheldni og leiðir með náungakærleik að leiðarljósi.

Gunnsteinn R. Ómarsson, oddviti 
Berglind Friðriksdóttir, 2. sæti 
Pálmi Þór Ásbergsson, 3. sæti
Bryndís Sigurðardóttir, 4. sæti 

Nýjar fréttir