Það var gríðalega efnilegur iðkendahópur HSK/Selfoss sem mætti á Meistaramót Íslands 11-14 ára í frjálsum, sem fram fór í Laugardalshöll 31. janúar – 1. febrúar. Árangur barnanna var eftirtektaverður og gerði lið HSK/Selfoss sér lítið fyrir og fékk 511 stig í heildarstigakeppninni og náði örugglega öðru sæti. Stúlkurnar í 11 og 12 ára flokki voru ötular í stigasöfnuninni og nældu sér í Íslandsmeistaratitilinn með því að sigra í heildarstigakeppninni í sínum aldursflokki og í 11 ára flokki voru það fimm stúlkur sem voru á meðal tíu stigahæstu stúlkna í fimmtarþrautinni. 11 ára piltar og 13 ára stúlkur urðu í öðru sæti í sínum flokki og 14 ára piltar urðu í þriðja sæti í sínum flokki.
Það var sérstaklega ánægjulegt að iðkendur frá Þór, Umf. Biskupstungna og Laugdælum mættu á mótið eftir fjarveru á síðustu árum.

Flest öll börnin frá HSK/Selfoss voru að bæta sig í greinunum og fjölmörg komust á verðlaunapall. HSK/Selfoss eignaðist fjóra Íslandsmeistara í einstaklingsgreinum. Andri Eldon Hreinsson, Laugdælum átti frábært mót, vann 60 m spretthlaup og kúluvarp í flokki 11 ára pilta, varð annar í hástökki og langstökki og þriðji í 400m hlaupi og vann svo fimmtaþrautina í hans flokki. Ingibjörg Lára Rúnarsdóttir, Selfossi kom fyrst allra 11 ára stúlkna í mark í 400m hlaupi og varð þriðja í 60m spretthlaupi. Hún varð svo í öðru sæti í fimmtaþraut 11 ára stúlkna. Karólína Orradóttir, Dímoni stökk hæst allra 12 ára stúlkna í hástökki, varð önnur í 60m spretthlaupi, langstökki og kúluvarpi og vann fimmtarþrautina í hennar flokki nokkuð örugglega. Það var svo Nikulás Tumi Ragnarsson, Þjótanda sem kastaði lengst allra pilta í kúluvarpi 12 ára.


Það voru fleiri börn sem náðu verðlaunum. Helga Þórbjörg Birgisdóttir, Selfossi varð önnur í langstökki og kúluvarpi 11 ára stúlkna og Þorbjörg Helga Björgvinsdóttir, Heklu varð önnur í 400m hlaupi 12 ára stúlkna. Það voru svo Írena Dröfn Arnardóttir, Selfossi sem varð í þriðja sæti í kúluvarpi 11 ára stúlkna, Grímur Örn Ægisson, Selfossi í þriðja sæti í kúluvarpi 11 ára stráka, Hilmir Dreki Guðmundsson, Selfossi varð þriðji í kúluvarpi 13 ára stráka, Viktoría Rún Elíasdóttir, Dímon varð þriðja í hástökki stúlkna 13 ára og Sæþór Elvar Jóhannsson varð þriðji í hástökki 14 ára pilta.

Einn af skemmtilegustu viðburðunum á mótinu eru boðhlaup þar sem stemmingin getur verið rafmögnuð og þar voru sett 2 ný HSK met. 11 ára sveit HSK/Selfoss setti HSK met í 4x200m blönduðu boðhlaupi í 11 ára flokki er hún hljóp á tímanum 2:14,87 mín og hlupu hraðast allra 11 ára sveita. Sveitina skipuðu Andri Eldon Hreinsson, Laugdælum, Helga Þórbjörg Birgisdóttir, Selfossi, Héðinn Fannar Höskuldsson, Þjótanda og Ingibjörg Lára Rúnarsdóttir, Selfossi. Blönduð 12 ára sveit setti einnig HSK met en hún hljóp á 2:13,24 mín og var það þriðja hraðasta sveitin í 12 ára flokki. Í sveitinni voru Karólína Orradóttir, Dímon, Þorbjörg Helga Björgvinsdóttir, Heklu, Þorkell Ólafur Þórbergsson, Þjótanda og Álfheiður Silla Heiðarsdóttir, Dímon. Í 13 ára flokki náðu stúlkurnar silfri í stúlknaflokki og strákarnir bronsi í piltaflokki.

