3.9 C
Selfoss

Tólf HSK met sett á hérðasmóti fatlaðra

Vinsælast

Héraðsmót fatlaðra í frjálsíþróttum var haldið á Selfossvelli dagana 10. og 11. ágúst sl. Til leiks mættu keppendur frá Suðradeild Umf. Selfoss, Ármanni og ÍFR, en gestaþátttaka var heimil á mótinu.

Systurnar frá Mörk, þær Guðrún Hulda, Sigríður og María Sigurjónsdætur voru að sjálfsögðu mættar í kastgreinararar í kvennaflokki og stóðu sig vel eins og alltaf, þó engin met hafi verið slegin á þessu sinni.

Tveir kappar frá Suðradeild Selfoss kepptu og settu samtals 12 HSK met, sem jafnframt eru landsmet í þeirra fötlunarflokki. Þetta voru þeir Hrólfur Geir Björgvinsson, sem keppir í flokki F36 og Sigurjón Ægir Ólafsson sem er í F34.

Sigurjón Ægir, sem var Íþróttamaður HSK árið 2023 fyrir frábæran árangur í kraftlyftingum, setti sín fyrstu HSK met í frjálsum árið 2024. Hann bætti 11 metum við í fyrra og metin í ár, eftir héraðsmótið, eru orðin alls níu. Á héraðsmótinu tvíbætti hann eigið met í kringlukasti sitjandi í F34, kastaði lengst 9,84 metra og þá setti hann nýtt HSK met í spjótkasti í sitjandi flokki sínum, kastaði 7,53 metra, hann þríbætti sinn árangur í kastseríunni.

Hrólfur Geir setti sín fyrstu tvö HSK og landsmet í fyrra í kúluvarpi í sitjandi flokki og eftir mót sumarins er hann búinn að setja 12 met í ár. Á héraðsmótinu þríbætti hann eigið met í F36 í kúlu, kastaði lengst 5,08 metra og þá bætti hann eigið met í kringlukasti fjórum sinnum á mótinu, kastaði lengts 9,64 metra.

Heildarúrslit mótsins má sjá á www.fri.is, undir mótamál og nýuppfærða HSK metaskrá á www.hsk.is.

HSK

Nýjar fréttir