2.8 C
Selfoss

Stefnumótunarfundur á Stracta

Vinsælast

Í dag, þriðjudag, verður haldinn stefnumótunarfundur íþróttahreyfingarinnar þar sem Sunnlendingum er boðið að setjast við borðið. Fundurinn er haldinn á Stracta Hótel á Hellu og hefst kl. 17:00 og líkur eigi síðar en 18:30. Hægt er að sækja fundinn rafrænt.

ÍSÍ og UMFÍ hófu í nóvember sl. vinnu við stefnumótun hreyfingarinnar.  Á síðustu vikum hefur verið unnið úr því efni sem þegar liggur fyrir. Á litlum vinnustofum hafa fulltrúar hreyfingarinnar og fjölmargir hagaðilar unnið að gagnaöflun og hugmyndum af ýmsu tagi. Unnið verður úr því efni sem þegar liggur fyrir til að undirbúa frekari rýni, umræður og þróun hvað varðar markmiðasetningu undir ólíkar stoðir starfseminnar.

Þegar talað er um ólíkar stoðir í starfi hreyfingarinnar er vísað í þá þrískiptingu sem byggir á grasrótarstarfi, afreksstarfi og samfélagsverkefnum. Vissulega er mikil  skörun í þessum stoðum og margt sem tengist.

Nú er komið að því að taka næstu skref í vinnunni og fá stærri hópa til að koma að þessum fyrsta hluta í vinnunni, taka þátt í að skilgreina hlutverkið og ákveða markmiðin.  Til að tryggja aðkomu sem flestra að ferlinu verður fundað um allt land. Jafnframt verður boðið uppá fundi á Teams fyrir þau sem ekki geta tekið þátt í staðfundum.

Fyrir þau sem vilja undirbúa sig fyrir fundinn á morgun er bent á að umræðan mun fyrst og fremst snúa að hlutverki hreyfingarinnar og markmiðum sem því tengjast.  Spurt verður um  stóru markmiðin sem við ætlum að ná og hvernig við getum sem best náð þessum markmiðum. Þá verður rætt um aðstöðu,  skiptingu fjármagns o.s.frv.  Hver ættu lykilmarkmið hreyfingarinnar að vera þegar kemur að grasrótarstarfi, afrekum og samfélagsmálum, s.s. lýðheilsu og forvörnum.

Fundarboðendur vonast  til að sjá sem allra flest á fundinum á Hellu.  Það er mikils virði og gerir alla vinnuna skilvirkari þegar raddir sem flestra heyrist  og ólík sjónarmið eru lögð á borðið.

Skráning hér:
Skráning á fundi

Nýjar fréttir