Afmælismót JSÍ
Það var mikið um að vera hjá júdódeild Umf. Selfoss í febrúar. Þann 14. febrúar var afmælismót Júdósambands Íslands haldið hjá Ármanni í Reykjavík þar sem keppendur á aldrinum 11–21 árs ettu kappi. Júdódeild Umf. Selfoss sendi 15 keppendur til leiks og stóðu þau sig mjög vel.
Írena Rán Arnardóttir fékk gull og Erna Elmarsdóttir silfur í stúlknaflokki U13 undir 36 kg.
Helga Birgisdóttir vann gull og Steinunn Atladóttir silfur í stúlknaflokki U13 undir 40 kg.
Franz Smárason fékk silfur og Stefán Úlfarsson brons í drengjaflokki U13 undir 34 kg.
Rúnar Óskarsson fékk silfur í drengjaflokki U13 undir 43 kg.
Lárus Gíslason hlaut brons í drengjaflokki U13 undir 66 kg.
Svava Stefánsdóttir fékk silfur í stúlknaflokki U15 undir 63 kg.
Jónas Gíslason fékk silfur í drengjaflokki U15 undir 66 kg.

Góumót Júdófélags Reykjavíkur
Góumót Júdófélags Reykjavíkur var haldið 21. febrúar í Ármúlanum í Reykjavík. Mótið er ætlað yngstu júdóiðkendum landsins á aldrinum 7–10 ára. Júdódeild Umf. Selfoss var með 16 keppendur á mótinu. Margir þeirra voru að keppa á sínu fyrsta móti og stóðu sig vel. Selfoss fékk fimm gullverðlaun, sex silfurverðlaun og fimm bronsverðlaun.


Ne-waza mót í Reykjanesbæ
Þann 28. febrúar var haldið fyrsta júdómót á Íslandi í gólfglímu (ne-waza). Þar hefst keppnin í gólfglímustöðu og markmiðið er meðal annars að halda andstæðingnum á bakinu. Keppendur 15 ára og eldri mega einnig nota hengitök eða armlása. Keppt var í aldursflokkum frá 11 ára og upp í fullorðinsflokk.
Mótið þótti mjög skemmtilegt og var skemmtileg nýjung í júdóíþróttinni.
Alls voru 11 keppendur frá Selfossi á mótinu. Þar má nefna að Styrmir Hjaltason sigraði í -81 kg flokki undir 21 árs og fékk einnig brons í fullorðinsflokki. Egill Blöndal sigraði örugglega fullorðinsflokk í -100 kg.


