6.1 C
Selfoss

MÍ 11-14 haldið um helgina

Vinsælast

Iðkendur Frjálsíþróttadeildar Selfoss fjölmenntu um helgina á MÍ 11-14 ára. Mótið var haldið í Laugardalshöll  helgina 31. janúar–1. febrúar. Lið HSK/Selfoss lenti í 2 sæti í heildarstigakeppninni með 511 stig. Keppendur sem lenda í 10 efstu sætum í hverri grein ná í stig fyrir sitt félag. Lið Ármanns sigraði með 796,5 stig. 11 ára stúlkur urðu Íslandsmeistarar í sínum flokki og það urðu 12 ára stúlkur einnig. 11 ára piltar og 13 ára stúlkur urðu í öðru sæti í sínum flokkum og 14 ára piltar urðu í þriðja sæti í sínum flokki.

11 ára flokkur

Ingibjörg Lára Rúnarsdóttir vann til silfurverðlauna í fjölþrautinni. Hún varð Íslandsmeistari í 400m hlaupi á tímanum 1:14,62 mín og einnig í 4x200m boðhlaupi með blönduðu liði HSK/Selfoss.  Hún vann auk þess til bronsverðlauna í 60m hlaupi á tímanum 9,57sek.  Helga Þórbjörg Birgisdóttir varð í fjórða sæti í fjölþrautinni. Hún varð Íslandsmeistari í 4x200m boðhlaupi með blönduðu liði HSK/Selfoss auk þess sem hún vann til silfurverðlauna bæði í langstökki er hún stökk 3,65m og í kúluvarpi er hún varpaði kúlunni 7,28m. Írena Dröfn Arnardóttir náði 7.sæti í fjölþrautinni. Hún vann til bronsverðlauna í kúluvarpi með 7,13m löngu kasti auk þess sem hún vann til bronsverðlauna í 4x200m boðhlaupi með blönduðu liði HSK/Selfoss.  Grímur Örn Ægisson varð í 9.sæti í fjölþrautinni. Hann vann einnig til bronsverðlauna í kúluvarpi er hann varpaði kúlunni 7,76m.

Ingibjörg Lára Rúnarsdóttir varð tvöfaldur Íslandsmeistari. Mynd: Aðsend.

13 ára flokkur

Hilmar Dreki Guðmundsson vann bronsverðlaun í kúluvarpi er hann þeytti kúlunni 8,73m og Bjarkey Sigurðardóttir vann til silfurverðlauna í 4x200m boðhlaupi í stúlknaflokki með liði HSK/Selfoss.

11 ára strákar urðu í öðru sæti í sinum flokki. Mynd: Aðsend.

Nýjar fréttir