-12.2 C
Selfoss

Met og toppárangur hjá Hönnu Dóru

Vinsælast

Hanna Dóra Höskuldsdóttir gerði góða ferð á innanhússkastmót í Växjö í Svíþjóð. Hún byrjaði á því að bæta sig í kúluvarpi strax eftir 12 klukkustunda langt ferðalag þegar hún kastaði kúlunni 10,68 m og endaði í 5. sæti. Í kringlukasti kastaði hún 35,76m sem er nýtt HSK met innanhúss. Frábærlega vel gert hjá Hönnu Dóru en hún var að keppa við mjög marga sterka andstæðinga fyrir framan mjög marga áhorfendur með tilheyrandi stemningu og látum. Hún höndlaði aðstæðurnar mjög vel, stóð sig frábærlega í báðum greinum og verður spennandi að fylgjast með henni í sumar.

Nýjar fréttir